Viðbót við færslu fyrr í dag...

Fyrri færsla mín frá í morgun var skrifuð í snarhasti í hádegisverðinum í vinnunni svo ég vil biðjast afsökunar á öllum mál- og stafsetningarvillum...

Fyrr í dag skrifaði ég um hvatningar Abbas forseta palestínu til síns fólk að fremja hryðjuverk í Ísrael.  Hann fetar í fótspor fyrirrennara síns, Yassir Arafat, sem var alræmdur fyrir að segja "friður" á ensku við vestræna fjölmiðla og "stríð" á arabísku við arabíska.  Abbas, sá hinn sami og sagði að það væri betra fyrir palestínska araba að deyja í flóttamannabúðunum í Yarmouk í Sýrlandi en að afsala sér rétti sínum á að flytja til baka til Ísraels og fá eigur forfeðra sinna til baka.  Sá hinn sami Abbas og hefur sagt að það sé ekkert öruggt að ef stofnað verði ríki Palestínu að palestínskir arabar fái þar sjálfkrafa ríkisborgararétt. Sami Abbas og vill að palestínskir arabar fái að flytja aftur til Ísrael en mun aldrei líða að einn einasti gyðingur búi á palesínsku landi (enda eru bæði Gaza og Svæði A og B í Júdeu og Samaríu "judenrein")

Þessi Abbas hefur hvatt palestínumenn til ofbeldis og "heilags jihad" um áraraðir, hvatt þá til að keyra yfir fótgangandi í Jerúsalem, skírt barnaskóla og götur eftir hryðjuverkamönnum og framleitt skólabækur og barnafni sem er uppfullt af íslömsku ofbeldi og hvatningum til að drepa gyðinga.  

Þessi Abbas stóð síðasta miðvikudag frammi fyrir Sameinuðu Þjóðunum og talaði um "palestínska friðarmenningu" (Palestinian culture of peace).

Síðustu vikur höfum við fengið að sjá hvað hann meinar.

Palestínskir arabar bæði í Júdeu og Samaríu (vesturbakkanum) og austur Jerúsalem hafa í auknum mæli ráðist á saklausa gyðinga á ferð sinni.  Grýtt bíla, sparkað niður skólakrakka og Þangað til í dag ber hæst fyrirlitlegt morð á ungum hjónum sem skildi fjögur ung börn eftir munaðarlaus.

En það er með þungu hjarta sem ég les fréttir kvöldsins... bara nú seinni part dagsins hafur sporvagn verið grýttur af palestínumönnum, tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður var handtekinn fyrir að kasta hnífum að fólki og að síðustu var tvítugur palestínumaður sem réðist á og drap tvo ísraelsmenn ásamt því að slasa illa unga móður og ungabarn hennar og fimmta mann lítillega. Eftir það tók hann upp byssu og byrjaði að skjóta villt en það virðist kraftaverki líkast að hann náði ekki að skaða fleiri áður en Ísraelsk lögregla var tilneydd að skjóta hann.  Annar mannanna sem hann drap var faðir barnsins og mamman var stunginn margoft og er haldið á lífi á spítala.

Hamas er þegar búið að kalla ódæðismanninn "hetju".

Abbas hlýtur að meina "palestinian culture of pieces" en enskan eitthvað að stríða honum...

Ég er ekki að sjá að þetta sé komið í íslenska fjölmiðla ennþá, en það verður fróðlegt að sjá hvernig þeim tekst að kenna Ísrael um þetta allt saman og hvernig "stuðningsmenn palestínu" geta réttlætt þessi hryðjuverk og kallað þetta fyrir "löglega sjálfsvörn".

og ég gleymdi... það var líka palestínumaður handtekinn í kvöld fyrir að keyra bíl sínum upp á gangstétt í því skyni að meiða eða drepa ísraelska borgara en náði víst bara að skaða einhvern lítillega....

Abbas þegir þunnu hljóði núna...

Þegar ísraelskir þegnar fremja hryðjuverk á palestínumönnum þá eru ísraelsk stjórnvöld og almenningur fljótur að bregðast við með fordæmingum og að koma rétti yfir þá er slíkt fremja.
Fordæmingarnar koma líka frá öllum heimshornum, Sameinuðu Þjóðirnar gefa út fordæmandi ályktanir og fjólmiðlar eru ekki lengi að láta til sín taka.

Þegar palestínumenn fremja hryðjuverk á Ísraelsmönnum heyrist ekkert frá alþjóðasamfélaginu, ekkert frá Sameinuðu Þjóðunum, fjölmiðlar segja frá nýjasta kjólnum hennar Kim Kardassian og Abbas skírir nýjar götur, barnaleikvelli eða skóla.

Palestínskir arabar fagna ógurlega, dreifa sælgæti og syngja gleðisöngva bæði á Gaza og í Júdeu og Samaríu.

Svo og í kvöld....

Það er allur munurinn....

ps. og ég var að fá fréttir að einnig fyrr í kvöld hefði palestínumaður grýtt sjúkrabíl sem var á hraðferð með lífshættulega slasaðann sjúkling.  Hver var sjúklingurinn?  Jú, palestínumaður sem hafði verið stunginn af öðrum palestínumanni sem hélt hann væri gyðingur...það er ekki einu sinni hægt að ljúga svona sögum....


smá útúrdúr vegna ömurlegrar fréttamensku...

ég verð bara að taka smá útúrdúr frá viðfangsefni mínu um tillögu Reykjavíkurborgar um viðskiptabann á ísrael...

Ástæðan er þreföld.  Óeirðirnar á musterishæðinni í Jerúsalem undanfarnar vikur. aðalfundur Sameinuðu Þjóðanna í New York sem hefur staðið yfir í tæpa viku og hryðjuverkaárásin í gyðingaparið í Júdeu og Samaríu (vesturbakkanum) í fyrradag og vanhæfni íslenskra (en einnig erlendra blaðamanna til að fjalla um málið.  Það virðist vera að eins og ritstjórum hjá fjölmiðlum, RÚV og fleirum, finnist getu- og þekkingarleysi blaðamanna á ástandinu í Ísrael sé þeirra stærsti kostur...

Óeirðirnar á musterishæðinni byrjuðu þegar gyðingar út um allann heim fögnuðu nýju ári Rosh Hashana, um miðjan septembermánuð.  Svo og í Ísrael...enda búa margir gyðingar þar...  áður gengin ár hafa verið haldnir uppi sömu siðir án þess að það hafi verið til stórfelldra vandræða.  Í ár, eftir hvatningar frá Mahmoud Abbas, forseta palestínumanna, byrjuðu strax mikil læti.  Musterishæðin, þar sem musteri Ísraelsmanna stóð til forna er tiltölulega stór og flöt hæð þar sem nú standa tvær moskur. Al-aqsa moskan og Dome on the Rock, og er gylltur kúpull hinnar síðarnefndu það sem sést á öllum póstkortum frá Jerúsalem.  Al-aqsa moskan er bærilega stór en lætur ekki mikið yfir sér og er staðsett meir "út á kanti" hæðarinnar og tiltölulega langt frá þeim stað sem musterið á að hafa staðið.  Segja má að hæðin sé þrískipt :al-aqsa moskan og umhverfi hennar sem er tiltölulega lítið, Dome on the Rock og umhverfi hennar og svo musterishæðin.  Waqf, nokkurs konar stjórnvöld musterishæðarinnar, er múslimskt og fer með umsjón yfir hæðinni.  Þarna er nóg pláss fyrir alla sem vilja og engin hætta á að tilbiðjandi gyðingar og múslimar, sérstaklega ekki nálægt Al-aqsa, trufli hvor aðra.

En í kringum Rosh Hashana byrjuðu miklar óeirðir frá múslimunum sem vildu meina gyðingum aðgang að musterishæðinni.  Ísraelsk stjórnvöld hafa alltaf séð til þess að svokallað "Status Que" sé til staðar þarna, þeas. að bæði múslimar, gyðingar og aðrir sem vilji geti tilbeðið sína guði óhindrað.... enda er trúfrelsi í Ísrael.

Eftir hvatningar frá t.d. Abbas byrjuðu múslimar að ráðast á gyðinga á hæðinni, meðal annars með grjótkasti (það eru til myndir af samansöfnuðum steinahrúgum innan úr Dome on the Rock sem notaðar eru til grjótkasts) líkamsárásum og öðrum truflunum.

Þetta hefur fjölmiðlum ekki þótt fréttnæmt og ef um er fjallað er eins og gyðingar séu að reyna að vanhelga Al-aqsa moskuna.  Ekkert getur verið fjarri sannleikanum.

Mahmoud Abbas hélt eina þá veruleikafirrtustu ræðu sem unirritaður hefur liðið undir í 40 mínútur á miðvikudaginn hjá Sameinuðu Þjóðunum.  Þar hvatti hann SÞ að samþykkja Palestínu sem fullgildann meðlim, málaði upp Ísrael sem ræningjabæli og talaði um "palestínska friðarmenningu" (Palestinian culture of peace)

Í kringum Rosh Hashana sagði aftur á móti sami Abbas um óeirðirnar á musterishæðinni, sem hann hafði sjálfur hvatt til : "við fögnum (we welcome) sérhverjum blóðdropa í Jerúsalem. Þetta er hreint blóð á leið sinni til Allah"

Í fyrradag voru svo ísraelsk hjón, búsett í Samaríu, drepinn í bíl sínum og fyrir framan fjögur börn sín á aldrinum 4 mánaða til 9 ára, af hryðjuverkahóp tengdum Al-aqsa Brigades, hinum vopnaða væng Fateh sem er flokkur Mahmoud Abbas.  Sá hópur hefur lýst því yfir að drápin voru "nauðsynleg vegna skyldu þeirra við heilagt jihad"

Drápunum hefur verið fagnað gríðarlega af palestínumönnum og hafa meðal annars hryðjuverkasamtökin Hamas kallað þetta ódæðisverk fyrir "hetjulega árás" (tveir menn sem biðu í leyni og skutu á bílinn þegar hann kom nálægt) og haldnar hafa verið fagnaðarhátíðir meðal palestínumanna bæði á Gaza og í Júdeu og Samaríu.

Það einkennilega við þetta allta saman að þegar þetta loksins ratar til fjölmiðla eins og RÚV að það er þetta allt orðið skrumskælt og lítur út eins og það sé ísrael og gyðingunum að kenna að þessi hjón voru drepin í engu öðru en hryðjuverkaárás.

Sænska SVT (samsvarandi RÚV) birti á textavarpi sínu smá frétt þar sem það lítur fyrir að þau hafi átt þetta skiið fyrir að hafa verið "landtökufólk" og hryðjuverkamennirnir kallaðir "skyttur" og RÚV getur ekki fjallað um málið án þess að blanda inn óróanum á musterishæðinni og ljúga til um að "Ísraelsk yfirvöld hafa meinað palestínumönnum aðgang að Al-aqsa msokunni í austurhluta Jerúsalem" eins og það sé ástæðan fyrir ódæðinu.

Er of mikið að ætlast til þess að blaðamenn sem fjalli um jafn viðkvæm mál geri heimavinnuna sína?


Tillaga Reykjavíkurborgar um sniðgöngu - Formáli.

Fyrsta bloggfærsla mín um "Stóra Ísraelsmálið" átti að verða sú eina, en eftir nokkrar athugasemdir við þá færslu og eftir að hafa hugsað betur um hvað málið fjallar, hef ég ákveðið að kryfja þetta enn frekar.  

Ætlun mín er að fara í gegnum tillöguna lið fyrir lið og sýna fram á af hverju hún er gyðingahatur...eða réttara sagt af hverju tillagan er greinilega innblásin af, og opinberar, gyðingahatur.

Ég mun gera þetta eftir því sem tími minn leyfir svo að þetta verður ekki reglulegt, ekki búast við nýrri færslu hvern föstudag, eða miðvikudag, en ég mun fara skipulega í gegnum þetta.

Það er ómögulegt að gera þetta af nokkru viti án þess að kafa í sögu Ísraels, gyðinga, Palestínu, hin ólíku tjáningarform gyðingahaturs osvfrv. svo að sum blogginnleggin gætu orðið löng, en ég mun að sjálfsögðu reyna að hafa þetta eins stutt og mögulegt er og vil ég gjarnan hvetja þá sem lesa til að t.d. googla orð, atburði, persónur og annað sem ég mun nefna til að geta sjálf myndað sér skoðun. Og einmitt af þeim sökum mun ég setja fram margar fullyrðingar án útskýringa eða heimilda.

Ég mun t.d. sýna fram á af hverju svör sem við sjáum oft, eins og "Það má enginn gagnrýna Ísraelsk stjórnvöld í dag án þess að vera ásakaður um gyðingahatur" er eitt af einkennum gyðingahaturs ásamt öðrum álíka. Hlutverk Íslams í deilunni, sögufalsanir, Pallywood, ályktanir Sameinuðu Þjóðanna og nokkrar lykilpersónur sem hafa stuðlað að þróun mála og hvað hlutverki þetta fólk gegndi.

Tilgangur minn með þessu er að sjálfsögðu að veita upplýsingar.

Í dag er komin upp sú staða, kanski ekki á Íslandi en í mörgum löndum í Evrópu, að t.d. kennarar í skólum geta ekki kennt um helförina án þess að verða fyrir áreiti og oft á tíðum geta þeir ekki einu sinni svarað þegar nemendur sem afneita Helförinni halda því fram að hún hafi aldrei átt sér stað. Gyðingahatur og "tungumál" gyðinghaturs hefur smeygt sér inn í daglegt líf fólks og deyft tilfinningu þess fyrir þessum hættulega vágesti.  Hver hefur ekki heyrt sagt að einhver sé "meiri gyðingurinn" ef hann er nískur og annað álíka.  Gamla fullyrðingin "Það byrjar alltaf með gyðingunum en endar aldrei með þeim" er alveg sönn og má segja að gyðingahatur sé undanfari menningarhnignunar.  Ef þú samþykkir og leyfir gyðingahatri að grassera í þjóðfélaginu er það bara tímaspursmál þangað til aðrir hópar verða fyrir hinu sama og á endanum höfum við upplausn þar sem hver höndin er á móti annarri.

Þannig að það er mikilvægt að gyðingahatur fá ekki fótfestu í þjóðfélaginu.  Að samþykkja gyðingahatur er að "skjóta sig í fótinn", eða að "saga af greinina sem maður situr á".

En... nóg um það í bili...vonandi verður þetta pár mitt til þess að tillagan sem á að leggja fram í breyttri mynd verði aldrei lögð fram því það yrðu gríðarleg mistök með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Í næstu færslu mun ég svo byrja á tillögunni, fyrstu vitleysunni sem kemur þar fram strax í fyrstu málsgreininni.  Nefnilega að Reykjvíkurborg "sniðgangi í innkaupum sínum vörur frá Ísrael á meðan hernám Ísraelsríkis á landssvæði Palestínumanna varir." nánar tiltekið munum við kíkja á hernámið og landssvæði Palestínumanna....


Rökvillur, gyðingahatur og sögufalsanir Palestínumanna.

Ég er búinn að fylgjast með "Stóra Ísraelmálinu" eins og það hefur verið kallað síðustu vikurnar, tillögu Bjarkar Vilhelmsdóttur, cirkusinn í borgarstjórn og eftirmálana sem hafa verið birtir í fjölmiðlum nú dagana eftir á.  Sem einn sem hefur fylgst með þessu síðustu 20 árin, eytt hundruðum klukkutíma í lestur á ályktunum Sameinuðu Þjóðanna, sögu Ísraels/Palestínu, alþjóðlegar rannsakanir, fréttir í fjölmiðlum, skýrslur osvfrv. tel ég mig vita lítið eitt um málið og hef þess vegna ákveðið að tjá mig.

Í fyrsta lagi blöskrar mér þekkingarleysið sem er allsráðandi.  Sérstaklega hjá fólki sem segist styðja Palestínumenn, sitja jafnvel í stjórnum félaga eins og félagsins Ísland-Palestína, borgarfulltrúum og ekki síst blaðamönnum sem virðast bara gleypa allt hrátt án þess að hafa rænu á að spyrja heilbrigðra gagn-spurninga eins og t.d. þegar að Ísrael er kennt um ástandið á Gaza hvort það geti mögulega verið eitthvað til í að hryðjuverkasamtökin Hamas beri einhverja ábyrgð á ástandinu.

En byrjum á byrjuninni.

Þann 15 september síðastliðinn lagði Björk Vilhelmsdóttir, sem vill svo til að er gift Sveini Rúnari Haukssyni formanni félagsins Ísland-Palestína, fram tillögu sína, sem hún hefur reyndar sagt að hafi ekki verið hennar tillaga... og líka sagt að hafi verið hennar tillaga... og Dagur B. Eggertson, borgarstjóri Reykjavíkur og ræðumaður á útifundum hjá félaginu Ísland/Palestína, hefur sagt að var tillaga Bjarkar og að samþykktin hafi verið hálfgerð gjöf til Bjarkar vegna þess að hún var að hætta til að geta farið að vinna sem sjálfboðaliði fyrir palestínumenn en jafnframt að það hafi verið hálfgert klúður að þetta leit út eins og einhvers konar kveðjugjöf.... ég sagði ykkur að þetta væri cirkus...

Tillagan mætti harkalegum viðbrögðum frá Ísraelsvinum og Ísrael og gyðingum út um heim allann, sem borgarstjóri hefur viðurkennt að ekki hafa búist við og að tillagan hafi ekki verið nógu vel undirbúin og vitlaust sett fram þrátt fyrir árs langa meðhöndlun hjá borgarstjóra með lögfræðingum og öðrum... og voru borgarfulltrúar janfnvel sakaðir um gyðingahatur... sem Björk sagði að væri alveg fráleitt að draga inn í umræðuna.

En af hverju þessi harkalegu viðbrögð?

Vandamál tillögunnar, og það sem vekur þessi viðbrögð er tungumálið sem er talað í henni. Orð og setningar eins og: "hernám Ísraelsríkis á landsvæði Palestínumanna", "sniðganga" (enska orðið "boycott"), "landamæranna frá því fyrir sex daga stríðið árið 1967", "kynþáttaraðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Ísrael", mannréttindi eru ekki virt og alþjóðasamþykktir", "Suður-Afríku" (tilvísan í aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku áður fyrr) og að sjálfsögðu er vitnað í ályktun sameinuðu Þjóðanna nr. 242 og að endingu talað um að svona þvinganir hafi gefið góða raun síðastliðin ár.

Það er mjög einfalt að hrekja allar þessar rökleysur.  T.d. er engin aðskilnaðarstefna Ísraelskra stjórnvalda til og alls ekki hægt að líkja því við Suður-Afríku, landamæri frá því fyrir sex daga stríðið eru heldur ekki, og hafa aldrei verið, til, og hernám á landsvæði Palestínumanna er bara bull útí bláinn.

Meira bull, og til að gefa dæmi um rökvillur þessara "stuðningsmanna Palestínu" er t.d. það sem Valdimar A. Arnþórsson, stjórnarmaður í félaginu Ísland-Palestína, skrifar á visir.is í gær, 25 september.  Valdimar segir meðal annars: "...skiptingu Bresku Palestínu á milli Palestínumanna og Ísraelsmanna...".  Hvernig var hægt að skipta "Bresku Palestínu" sem hét reyndar bara "Palestína" á þessum tíma, en bretar voru með umsjón yfir, á milli "Palestínumanna" og "Ísraelsmanna" þegar að Ísrael var ekki ennþá orðið til og íbúar Palestínu sem voru gyðingar, arabar, kristnir, drúsar ofl. voru allir kallaðir "Palestínumenn"?  Til að aðskilja íbúana var t.d. talað um "Palestínu-gyðinga" og "Palestínu-araba", nafn sem gyðingarnir voru sáttir við en arabarnir hötuðust við á þessum tíma. Reyndar vildu arabar landins alls ekki kallast "Palestínumenn" fyrir 1967.

En svona er nú öll þekking "stuðningsmanna Palestínu" í molum.

En hvað varðar orðalag tillögu Bjarkar, þá er hér notast við tungumál BDS samtakanna, sem félagið Ísland-Palestína styður heilshugar, og hvetur félagsmenn sína til... þrátt fyrir yfirlýsta andstöðu Mahmoud Abbas, forseta Palestínu gegn sniðgöngu á Ísrael.

BDS samtökin eru gyðingahaturssamtök, sem varð mjög augljóst í ágústmánuði þegar samtökin reyndu að þvinga bandarískann tónlistarmann, sem er gyðingur, til að skrifa undir skjal þar sem hann lýsti yfir stuðningi sínum við Palestínu.  Hér er ómögulegt að bera það fyrir sig að um "gagnrýni á Ísraelsk stjórnvöld" sé um að ræða.

Upphafsmenn BDS hafa lýst því yfir að samtökin séu endalok Ísraelsríkis... hér er verið að tala um að þurrka heilt land út af kortinu... enda hefur Omar Barghouti, einn stofnandi og talsmaður samtakanna, margoft lýst yfir andstöðu sinni við "Tveggja ríkja lausnina"... er það í samræmi við stefnu Íslenskra stjórnvalda?... eins og reyndar Abbas og yfir 80% af paestínumönnum nú gera samkvæmt síðustu könnun.

Það er nú varla hægt að halda því fram að maður sé ekki gyðingahatari og á sama tíma vilja eyða ríki gyðinga af yfirborði jarðar?  Einn yfirlýstur stuðningsmaður við málstað Palestínumanna hefur sagt að henni finnst "ganga allt of hægt að eyða ísraelsríki"...

Ísrael er trygging þess að aldrei aftur muni helmingur gyðinga heimsins verða skipulega myrtur í tilraun til að gereyða þeim eins og við þekkjum frá Seinni Heimsstyrjöldinni.  Þannig að allt tal um að eyða ríki þeirra ræðst á þetta öryggi þeirra og er að sjálfsögðu ekkert annað en gyðingahatur.

Að félagið Ísland-Palestína, sem segir að markmið sitt sé að "stuðla að jákvæðum viðhorfum til ísraelsku og palestínsku þjóðanna" deilir sæng með haturssamtökum eins og BDS, tekur upp og umfaðmar tungumál þess, sögufalsanir (eins og heimasíða félagsins er full af) og aðrar lygar eins og að Ísrael sé að fremja "þjóðarmorð" á Palestínumönnum... sem fjölgar um rúmlega 50.000 á ári (þjóðarmorð fækka fólki)... osvfrv. þá er félagið löngu búið að yfirgefa markmið sín og orðnir þáttakendur í sama gyðingahatri og hrjáir fleiri milljónir manna útum allann heim, sérstaklega í Mið-Austurlöndum og Evrópu þar sem gyðinghatursbrotum hefur fjölgað um ca 400% á síðasta ári.

Allann fjárstuðning til félagsins Ísland-Palestína, ef einhver er frá hinu opinbera, ætti að stöðva nú þegar.

Að svo borgarstjórn Reykjavíkur taki við þessari tillögu og samþykki, þrátt fyrir greinilegt gyðingahatur, er merki um alvarlegann dómgreindarbrest.  Það var ekkert annað í stöðunni fyrir borgina en að draga hana til baka, ef borgaryfirvöld vilja virkilega virða mannréttindi og réttlæti þá væru það alveg stórkostleg mistök ef Reykjavíkurborg léti sér detta í hug að leggja fram tillöguna í nýrri og breyttri mynd.

Ef borgarstjórn vill kynna sér málið frekar áður en þeir leggja  vanhugsaða gyðingahaturstillögu fram að nýju er ég boðinn og búinn til útskýra fyrir þeim hvað er í húfi og hvað þau eru að í rauninni að gera.

Og þá sleppa þau líka við þann stimpil sem þau munu fá og þann skaða sem það mun valda landi og þjóð.

Virðingarfyllst, Viktor Harðarson.
Höfundur er áhugamaður um málefni Mið-Austurlanda og ábyrgur fyrir öllu stafrænu efni sem kemur frá félaginu Svíþjóð-Ísrael í Stokkhólmi.


Karma i raunveruleikanum

Athyglisvert að lesa greinina um Karma eftir Kára Auðar Svansson.  Hann bendir á að Karma samkvæmt hinduismanum sé ekki eins og sr. Þórhallur haldi fram.  Báðir, Kári og sr. Þórhallur hafa rétt fyrir sér.  Kenningin um karma, sem Kári kryfur svo vel, er rétt, kenningarlega.  Í raunveruleikanum fer hún fram eins og sr. Þórhallur lýsir.  Ég held að það sé best að halda sig við raunveruleikann.  Raunveruleikinn sem ég er að tala um gerist  í Indlandi þar sem hindúisminn er stærstur og flestir, þ.e.a.s. 80,4% eða 828 milljónir af íbúunum, byggja lífsviðhorf sín á. 

Ég vill byrja á að benda á að Indverjar og Íslendingar eru mjög ólikt fólk.  ( Reyndar verð ég að viðurkenna að það er næstum spúkí hvað akkúrat Íslendingar og Indverjar eru líkir, ef maður ber saman Íslendinga við aðrar þjóðir sem eru nær okkur landfræðilega, mín persónulega skoðun er sú að þetta sé vegna þess að nýöldin og hindúisminn er það sama)  Við erum uppalin með  "vestrænt hugarfar" sem samanstendur af ýmsum kenningum, t.d. kenningum Krists (gullna reglan), Darvinisma(maðurinn er dýr), húmanisma(allir menn eru innst inni góðir), Marxisma(stéttlaust samfélag) og öðrum kenningum meira eða minna þekktra manna sem hafa stuðlað að því að móta hugarfar fólks á vesturlöndum.  Hugarfar okkar og lífsviðhorf hefur síðan beinar afleiðingar á hegðun okkar og hegðun okkar kemur best fram í samskiptum okkar við aðra.  Til að gera langt mál stutt, þá komum við fram við aðra sem afleiðing af þeim kenningum sem móta huga okkar. 

Þetta á að sjálfsögðu líka við um Indverja.  Þeir aftur á móti (að SJÁLFSÖGÐU ekki allir) eru ekki mótaðir af sömu kenningum.  Þeirra hugsanaháttur er næstum eingöngu mótað af hindúismanum.  Það er hægt að segja að Indverjar séu trúað fólk því þeir hegða sér í samræmi við kenningar hindúismans, þeir hugsa þannig, þeir tala þannig og þeir lifa þannig.  Og ég endurtek:"ég er að SJÁLFSÖGÐU EKKI að tala um þá alla."

En hindúisminn mótar samfélag þeirra.  Þess vegna fer mamman að gráta af ótta þegar 8 ára sonur hennar hefur verið frelsaður úr ólöglegri verksmiðju sem lætur börn niður í 4 ára aldur vefa teppi handa ríkum ferðamönnum.  Hún hafði jú eftir allt saman selt hann upp í skuld.  Nú er hún komin í skuld aftur.  Þess vegna tekur hópur fólks sig saman og misþyrmir og drepur heilu fjölskyldurnar vegna þess að þær kaupa sér landskika.  Fjölskyldan tilheyrir "hinum stéttlausu".  þess vegna fyrirlíta margir Indverjar hjálparstofnanir sem byggja skóla, gefa mat eða sinna öðrum nauðstöddum.  Ég segi "margir" sem fyrirlíta, það er mikill minnihluti sem hefur slík viðhorf en þjóðin er 1.1 milljarður manna og kvenna (ellefuhundraðþúsundmilljónir), aðeins fleiri en á Íslandi.

Það er ekki óalgengt að heyra Indverja segja þegar ferðamenn í Delhi fá sjokk yfir því hvað margir búa á götunum án nokkurra möguleika á viðreisn.  "Þetta er hans/hennar karma.  Hann er óhreinn vegna fyrra lífs.  Ég held mig frá honum vegna þess að ef ég hjálpa honum bitnar reiði guðanna á mér."  Eftir allt þá eru þeir í þessu ástandi vegna einhvers sem þeir gerðu í fyrra lífi og það er ekkert hægt að gera en að vona að þeirra næsta líf verði betra.  ÞAÐ er karma í verki samkvæmt Indverjum sjálfum, og maður er ekki Guð svo það er best að vera ekki að trufla karmað.

Eins og ég sagði í byrjun, Kári hefur rétt fyrir sér hvað varðar kenningarnar en raunveruleikinn sem sr. Þórhallur lýsir bitnar á tugum ef ekki hundruðum milljóna manna á degi hverjum.

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband