Ályktanir Sameinuðu Þjóðanna, Ísrael og úrganga USA úr Mannréttindaráðinu.

Nýverið yfirgáfu Bandaríkin Mannréttindaráð Sameinuðu Þjóðanna. Það sem batt endahnútinn á veru Nikki Haley, fulltrúa USA í ráðinu, var ályktun sem lögð var fram í kjölfarið á viðureignum Ísraels og Hamas hryðjuverkasamtakanna á Gaza þar sem yfir 100 Palestínumenn voru skotnir af Ísraelskum leyniskyttum.

Mikið hefur verið skrifað um bæði atburðina á Gaza og úrsögn Bandaríkjanna úr ráðinu og skýringa er þörf. Í þessum pistli, sem verður langur og allt í belg og biðu, mun ég einungis taka fyrir ályktunina sem varð til þess að Bandaríkin á endanum yfirgáfu Mannréttindaráðið.

Kíkjum á ályktunina, eða réttara sagt hvað er á bakvið hana...og er eitthvað sem íslenskir fjölmiðlar munu aldrei fjalla um.

Öll ályktunin getur lesist hér: https://undocs.org/A/ES-10/L.23

Í fyrsta lagi eru ályktanir SÞ einmitt bara það. Ályktanir. Þær eru ekki alþjóðalög eins og margir "stuðningsmenn Palestínu" virðast halda. Alþjóðalög koma, meðal annars, til þannig að einhver regla (eða annað "practice") verður sameiginlegt gildis- og hegðunarmat fleiri landa þangað til að nógu mörg lönd virða regluna sem eitthvað sem öllum ber skylda að rétta sig eftir.

(Verð að biðjast afsökunar á íslenskunni. Ég er svo vanur að fjalla um þetta á ensku eða sænsku að það er rosalega erfitt fyrir mig að útleggja þetta á íslensku. Vona að þið skiljið samt?)

Þetta á að sjálfsögðu við um ályktanir SÞ líka og er ein af ástæðunum fyrir því að löndin sem tilheyra Arab League og OIC, og/eða önnur lönd og ríki sem vonast efitr pólítískum ávinningi, leggja fram ályktanir um Ísrael/Palestínu í hvert einasta sinn sem UNHRC (Mannréttindaráð SÞ...sem er bara brandari og líklega erum við að sjá Bandaríkin yfirgefa...aftur...á næstu dögum eða vikum (þetta blogginnegg er upprunalega svar á Facebook og var skrifað nokkrum dögum áður en Bandaríkin yfirgáfu Mannréttindaráðið) en hefur nú fengið smá breytingu og viðbætur) kemur saman. Reyndar er það þannig að þegar ég hef fylgst með útsendingum Mannréttindaráðsins, Öryggisráðsins eða Alsherjarráðsins, eða annarra deilda innan SÞ, á vef SÞ, að það fer ca 50% tímans í að rakka niður á Ísrael. Sérstaklega Öryggisráðið og Mannréttindaráðið hafa lítið annað að gera... og UNESCO er alveg sér kapítuli þar sem það eina sem eftir er er að neita að Ísrael sé Ísrael, að neita því að gyðingar séu gyðingaar, að bæði Narnía og Draumalandið séu aðildarríki að SÞ og að Harry Potter verði Aðalritari. Svo raunveruleikafirrt er ástandið þar á bæ.

Þar sem Ísrael er eina landið í öllum heiminum sem á fastan punkt (UNHRC agenda item 7) í prógrammi deilda innan SÞ þá er nauðsynlegt að, þegar lagðar eru fram ályktanir varðandi Ísrael hjá SÞ að vita hverjir leggja þær fram, hvar og af hverju.


Og þegar það eru lagðar fram ályktanir sem varða Ísrael verður þetta mjög einfalt mál. Mjög mjög mjög einfalt.

Hér er grein frá 2016 (tölfræðin hefur lítið beeytst síðan þá) sem lýsir vel hvað er í gangi þegar það kemur að ályktunum um Ísrael hjá SÞ: https://www.unwatch.org/un-israel-key-statistics/

Í fyrsta lagi eru SÞ engin heilög belja sem gerir alltaf allt fullkomlega rétt. Íslendingar þurfa að venja sig af þessarri einfeldninglegu barnatrú sinni á fullkomleika Sameinuðu Þjóðanna.


Sjáið nú til. Aðildarríki Sameinuðu Þjóðanna eru 193 talsins. Af þeim eru (skv. Freedom House) einungis 86 þeirra sem eru "full democracy" eða "fully free". Þeas. 45% af ríkjum SÞ hafa sömu eða svipuð gildi og Ísland og restin af því sem við köllum hinn "Frjálsa Heim".

Restin af aðildarríkjunum, eða 55% (sem er hreinn meirihluti vegna þess að öll ríki, frjáls eða ekki, hafa eitt atkvæði í öllum atkvæðagreiðslum) eru allt frá því að vera "að hluta til frjáls" upp til "harðstýrð einræðisríki".  Flest þessarra ríkja hafa gjörólíka heimssýn en þá sem ríkir á vesturlöndum. Sem dæmi má nefna að í Miðausturlöndum þekkist varla trúleysi. Allir trúa á eitthvað eða einhvern og í Egyptalandi er frammi lagafrumvarp þar sem lagt er til að trúleysi verði gert glæpsamlegt og að sá sem aðhyllist trúleysi geti verið dæmdur til fangelsisvistar. Og norsk kona sem var nauðgað í Sádi Arabíu var fangelsuð fyrir að vera úti án fylgdar karlmanns þegar hún kærði nauðgunina til lögreglunnar. Að karlmaður hjálpi til með heimilisstörf í Pakistan er algerlega óhugsandi og svona mætti áfram telja. Fæst þeirra styðja vesturlendsk sjónarmið, lýðræði, frelsi mannréttindi...eða Ísrael... og valdamesti og stærsti aðilinn meðal þessarra ríkja er samband múslimalandanna, OIC. Organisation of Islamic Cooperations. OIC telur 57 aðildarríki sem, að undanskildum Senegal og Túnis (Túnis er reyndar enn sem komið er óskrifað blað) sem eru einu löndin samkvæmt Freedom House og Economist sem "Frjáls". Öll önnur lönd innan OIC eru annað hvort "Ekki frjáls" eða "Að hluta til Frjálst". Pakistan er t.d. "að hluta til frjálst" en þar eru minnihlutahópar hart ofsóttir og innbyrðis skærur og óöryggi í landinu gera að verkum að erlendir fjárfestar og stærri fyrirtæki hætta ekki á nærveru í landinu. En komum að OIC betur síðar...

Það má ekki gleyma því hvaða hugmyndafræði það er sem stýrir hinum ýmsu aðildarríkjum SÞ. Í Íslands tilfelli er það t.d. blanda af Kristindómi, veraldarhyggju, Darwinisma, blöndu af hinum ýmsu pólitísku stefnum og öðru sem hefur mótað hugarfar íslendinga og þar af leiðandi heimssýn okkar og pólitík.

Í Kína er það í stórum dráttum kommúnismi og blanda af gamalli heimsspeki Taóisma, Daóisma, Buddhisma ofl.

Innan aðildarríkja OIC er það Íslam. Nánast einungis. Það er mismunur á hinum ýmsu löndum innan OIC hvaða stefnu Íslams ákveðið land fylgir og hversu miklum áhrifum það land hefur orðið fyrir af annarri hugmyndafræði. Líbanon er t.d. mjög frjálst íslamskt land með miklum vestrænum áhrifum meðan að lönd eins og Íran er sharíastýrt íslamskt einræðisríki þar sem ekkert annað kemst að.

Þetta ætti fyrir eðlilega þenkjandi fólk að draga fram þá einföldu og augljósu staðreynd að Sameinuðu Þjóðirnar eru í raun og veru ekkert sérstaklega "Sameinaðar".

Og langt frá því að vera eitthvað samfélag ríkja sem aðhyllast lýðræði, frelsi, mannréttindi og annað sem við á Vesturlöndum teljum sjálfsagða hluti í tilverunni.

Þannig að þegar hin ýmsu lönd gefa atkvæði sitt í kosningum verður að hafa í huga að ekki öll lönd hugsa á sama hátt, eða hafa sömu skoðanir og viðmið, á þeim málefnum sem verið er að kjósa um...og mörg af þessum löndum eiga ekki í neinum vandræðum með að selja atkvæði sitt ef vel er boðið. Mútuþægni er vel þekkt vandamál innan SÞ en lítið er hægt að sanna eða gera við því.


Þetta verður mjög augljóst ef maður þekkir til landsins sem leggur fram ályktun og við sjáum hvernig viss lönd veita sitt atkvæði, þá verður það augljóst hvaða hugmyndafræði það er sem er á bakvið, og þegar það varðar Ísrael, þá er það ekkert sem spilar jafn stóra rullu og Íslam.


Samkvæmt íslam er landið Ísrael eitt "Waqf", eða landssvæði sem tilheyrir Íslam og má aldrei vera stýrt af neinum öðrum.

Þetta er aðal ástæðan fyrir því að Arababandalagið neitaði Palestínsku ríki 1947, að Múslimar hafa startað nokkrum stríðum til að "frelsa" "Palestínu" síðan þá...og tapað þeim öllum... að þeir hafa hafnað öllum (7) friðartilboðum Ísraels (nýverið hafnaði forseti Palestínu, Mahmoud Abbas friðartillögu Bandaríkjanna án þess einu sinni að líta á hana, og er það í 8 skiptið sem friðartillögu er hafnað í þessarri deilu) og allann tímann kallað eftir "jihad" gegn zíonistunum/Ísrael/gyðingum í gegnum tíðina og allt fram í skólabækur palestínskra barna í dag.

Aðalatriðið, og það sem þarf alltaf að vera í meðvitundinni, er að í huga Palestínumanna og margra múslima má aldrei finnast neitt sem heitir Ísrael, sem er gyðinglegt ríki, og það landsvæði sem tilheyrir Ísrael nú verður að koma aftur undir yfirráð íslams. Þetta predikaði "Faðir Palestínu" Amin al-Husseini, lærisveinn hans: hryðjuverkamaðurinn Yassir Arafat, núna arftaki hans og forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, og aðrir leiðtogar múslimskra landa eins og t.d. Khamenei í Íran gerir nú daglega, Erdogan í Tyrklandi...sem er nýbúinn að kalla eftir því að múslimar heimsins myndi einn stórann her og ráðist á ísrael, Assad Sýrlandsforseti ofl.

Næst stærstu samtök heimsins (SÞ eru stærst) eru ofannefnd OIC eða Organisation of Islamic Cooperation https://www.oic-oci.org/home/?lan=en og þessi samtök stjórna í dag öllu sem viðkemur Ísrael innan veggja SÞ. OIC voru stofnuð 1969 til að bregðast við þegar ástralskur túristi kastaði molotovkokteil inn í al-Aqsa moskuna í Jerúsalem. Síðan þá breiðir OIC út lygina um að Ísrael vilji eyðileggja al-Aqsa og Dome on the Rock moskurnar á Musterishæðinni í Jerúsalem og má heyra hróp um að vernda al-Aqsa koma frá Abbas, Al-Sissi, visir.is og rúv. Ásamt öðrum. 

OIC eru fyrst og fremst múslimsk trúarsamtök og allt sem þau gera er gert í samráði við sharía dómstóla og með það að markmiði að fremja íslam í heiminum. OIC samþykkir ekki Mannréttindasáttmála SÞ (en á samt fjölda aðildarríkja í Manréttindaráðinu) og hafa sinn eigin, svo kallaðan "Kairó Sáttmála" Cairo Declaration sem segir skýrt og skorinort að mannréttindi tilheyri einungis múslimum og því meiri múslimi sem þú sért því meiri réttindi áttu að hafa. OIC berst gegn tjáningarfrelsi og ritfrelsi ásamt trúfrelsi (samkvæmt OIC finnst bara ein trú...gettu þrisvar hvaða?) Kairo Declaration hefur að sjálfsögðu mætt mikilli gagnrýni.

OIC ríki leggja alltaf atkvæði sitt í samræmi við stefnu OIC. Með einungis einstaka undantekningum. Þar af leiðandi eru önnur aðildarríki SÞ undir miklum þrýstingi að leggja sín atkvæði á sama hátt til að geta notið stuðnings OIC landanna síðar og ekki má gleyma vanheilögu hjónabandi íslams og sósíalismans, sósíalísk lönd kjósa venjulega á sama hátt og hin íslömsku og svo að sjálfsögðu olían. En OIC löndin eru mikilvæg til að sjá Vesturlöndunum fyrir nauðsynlegri olíu og er olían mikill áhrifavaldur þegar atkvæði eru greidd innan SÞ. Aðrir mikilvægir áhrifavaldar þegar kemur að OIC eru önnur viðskipti og stjórnmálasamband og að síðustu óttinn við hryðjuverk. Nánast öll hryðjuverk sem framin eru í heiminum í dag eru framin af öfgamúslimum og er almennt talið að velvilji í garð múslimskra landa minnki hættuna á hryðjuverkum í því landi sem sýnir íslam velvilja. Það er nauðsynlegt að taka fram í þessu samhengi að svo til engin lönd innan OIC styðja hryðjuverk og að OIC sem samtök fordæma hryðjuverk framin af íslamistum sem og öðrum.

En OIC er á bakvið þessa ályktun sem fjallar um að vernda saklausa Palestínumenn (ekki Hamas hryðjuverkamenn, sem við vitum að eru minnst 80% af þeim sem hafa látist) í átökum.

Ályktunin einkennist af íslömsku sjónarmiði og styðst við fjölmargar aðrar ályktanir, t.d. 242 sem er grundvöllurinn að friðarviðræðum Ísraels og Palestínu og er tekin fram eftir Sex Daga Stríðið 1967, 338 sem er samþykkt eftir Yom Kippur stríðið 1973, 605 þar sem Ísrael er fordæmt fyrir að verja sig gegn hryðjuverkum í fyrsta intifadan 1987 og að sjálfsögðu kveðjugjöf Obama til Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, ályktun 2334 þar sem Ísrael er fordæmt fyrir landnemabyggðir á herteknu svæðunum. Ályktunin hafði verið lögð fram áður en þá notaði USA neitunarvald sitt en þáverandi fulltrúi USA, Samantha Power, beitti ekki neitunarvaldinu seinna í desember 2016 og er það víðtekið álit sérfræðinga að sú ályktun var einungis samþykkt vegna haturs Obama á Netanyahu. 

Að auki nefnir ályktunin hvergi þáttöku Hamas hryðjuverkasamtakanna í uppþotunum og skellir allri skuld á öllu sem ályktunin tekur fram, ástandið á Gaza, neyðaraðstoð, uppþotum og óeirðum í Austur-Jerúsalem osvfrv á Ísrael.

Reyndar tókst Nikki Haley að fá samþykkta viðbót við ályktunina nokkrum dögum síðar þegar hún var lögð fram hjá Alsherjarráðinu þar sem Hamas er fordæmt fyrir þáttöku sína og ábyrgð á ofbeldinu. Hana má lesa hér: https://www.un.org/unispal/wp-content/uploads/2018/06/A.ES_.10.L.24.pdf

Ályktunin sem fordæmir Ísrael hafði fyrst verið lögð fram hjá Öryggisráðinu en þar notuðu Bandaríkin neitunarvald sitt til að fella hana og var þá brugðið á það ráð að leggja hana fram til kosningar í Alsherjarráðinu (General Assembly).

Ríkin sem lögðu fram ályktunina, að undirlagi OIC eru Alsír og Tyrkland ásamt að sjálfsögðu Palestínu, sem þrátt fyrir að vera hvorki land né ríki hefur ákveðna stöðu innan SÞ (að sjálfsögðu...(sic)). 

Alsír, þar sem "mótmæli" eins og á Gaza eru bönnuð, konur eru hýddar opinberlega, hommar eru hengdir og hendur höggnar af þjófum, hefur miklar áhyggjur af ástandinu á Gaza. Miklu meiri en af ástandinu í Yarmouk flóttamannabúðunum í Sýrlandi þar sem fleiri hundruð Palestínumenn hafa verið drepnir síðustu vikurnar af Assad. Mannréttindasamtök eins og amnesty geta ekki skráð sig í Alsír, sem gerir þeim ókleift að starfa þar, og fólk sem berst fyrir tjáningarfrelsi, eða á einhvern hátt gagnrýinr Alsírsk stjórnvöld, deyr í fangelsum í Alsír.

Alsír gefur ekki vegabréfsáritanir til Ísraels og fólk með Ísraelískt vegabréf er ekki hleypt inn í landið.

Þetta er sem sagt eitt landanna sem hefur svo miklar áhyggjur af ástandinu á Gaza.

Annað land er Tyrkland. Sem á heimsmet í fangelsun blaðamanna og þar sem minnihlutahópar eru ofsóttir svo harkalega að það er jafnvel ráðist inn í Sýrland til að drepa Kúrdana þar og þar sem kirkjur eru nú teknar eignarhaldi af yfirvðldum og þeim breytt í moskur. Spilling er gríðarleg í Tyrklandi, og vegna stjórnarskrárbreytingar sem samþykkt var á síðasta ári hefur sitjandi forseti alræðisvald. Og viti menn... haldiði ekki að Erdogan hafi "óvænt" verið endurkjörinn forseti í  nýyfirstöðnum forsetakosningum í Tyrklandi...

Tyrkland hefur miklar áhyggjur af ástandinu á Gaza.

En það var ekkert vandamál að kaupa olíu af ISIS. Eða hylla Hamas fyrir hryðjuverk, eða, eins og áður er skrifað, hvetja til að múslimalöndin myndi sameiginlegann her til að þurrka Ísrael út af kortinu. 

Og svo er þriðja landið að sjálfsögðu "Palestína". Sitjandi forseti, Mahmoud Abbas sem er á sínu 13 stjórnarári af þeim 4 sem hann var kosinn til, er alkunnur gyðingahatari sem hefur lýst því yfir að hann muni aldrei líða að einn einasti gyðingur fái að búa í Palestínsku ríki, og hvers fölskylda er búin að búa þarna síðan á tímum risaeðlanna (hann sagði það í alvöru) og sem tekur af lífi hvern þann Palestínumann sem selur fasteign til gyðings á sjálfsstjórnarsvæðum Palestínumanna ásamt því að vera duglegur að hygla fjölskyldu og vinum með peningum frá þeim alþjóðlegu styrkjum sem eiga að renna til að byggja upp Palestínskt ríki (2016 var "Palestína" búin að fá fjárhagsaðstoð sem mótsvarar 16 sinnum Marshallhjálpinni sem var notuð til að endurreisa Evrópu eftir WW2, eða 16x110.000.000.000 usd. Af þeim peningum eru ríflega 2.000.000.000 "sporlaust horfnar") og borga hryðjuverkamönnum sem sitja í ísraelskum fangelsum "laun". Fyrir 2018 fara ca 7% af alþjóðlegum hjálparstyrkjum til þessa eða ca 400.000.000 usd. Með öðrum orðum þá fara peningar íslenskra skattgreiðenda sem eru notaðir í neyðaraðstoð til Palestínu til að borga morðingjum laun.

Ef lesandinn er óánægður með í hvað skattarnir hans eru notaðir mæli ég með að hann setji sig í samband við utanríkisráðherra og krefjist þess að Ísland, eins og Bandaríkin gera nú með "Taylor Force Act" (Taylor þessi var bandarískur ferðamaður sem var drepinn af palestínskum hryðjuverkamanni í Ísrael árið 2016) og stoppi allann fjárhagsstuðning til PA (Palestinian Authority)

Þessi þrjú lönd og samtök eru aðalleikararnir í þessarri ályktun.

Lönd sem nota hvert tækifæri sem gefst til að drepa eigin þegna og samtök sem vilja að allur heimurinn heyri undir sharia lög.

Eins og áður er sagt þá nefnir ályktunin hvergi hlutverk Hamas. Sem þó eru ábyrg fyrir "mótmælunum" og hafa lýst því yfir að mótmælin séu bara yfirskin til að geta brotist inn í Ísrael og framið hryðjuverk þar.

Stjórnarskrá Hamas lýsir skýrt og greinilega því yfir að tilgangur og meginmarkmið samtakanna sé gereyðing Ísraels. Þeim er skítsama um "Palestínu" eða palestínska araba. Þeir vilja bara framfylgja kóraninum og endurheimta sitt Waqf. Hvað sem það kostar.

Þessi ályktun er því bara enn ein bitlaus ályktunin sem snýst um að Íslam vill ráða yfir því landi sem Ísrael er byggt á.

Og til þess nota samtök og lönd öfgafullra múslima, Sameinuðu Þjóðirnar, til að geta framfylgt boðum leiðtoga sinna um Jihad. 

Það er það sem þetta snýst um.

Að samþykkja ályktanir sem eru lagðar fram af íslömskum öfgasinnum, gyðingahöturum og einræðisherrum sem ofsækja eigin þegna og fótumtroða mannréttindi og sem auk þess hafa að aðalmarkmiði með ályktuninni að þurrka Ísrael út af kortinu, er geðbilun á háu stigi.

Og það að Ísland skuli taka þátt í þessu er harmleikur.

Þetta var bara lítið eitt um ályktunina, hvað og hverjir eru á bak við hana og hvaða tilgangi hún gegnir og ég vona að þetta varpi ljósi á að Sameinuðu Þjóðirnar eru engin óbrigðul samtök og hvers ályktanir allt of sjaldan eru til góðs.

Ísland sem aðildarríki að SÞ þarf að ákveða hvaða siðferðislegu viðmiðum landið ætlar að fylgja í framtíðinni þegar það kemur að að veita atkvæði sitt í ályktunum sem eru lögð fram af ríkjum sem á engann hátt endurspegla viðhorf okkar til heimsins og/eða hvað sem er rétt og rangt eða gott og vont og jafnvel, eins og í þessu tilfelli, á engann hátt geta orðið til góðs fyrir þann heim sem við viljum skapa og búa í, varðveita og erfa börnin okkar að.

Ég á erfitt með að trúa að nokkur Íslendingur styðji fangelsun blaðamanna, hýðingar kvenna á almannafæri eða dauðarefsingu fyrir að selja fasteign. Af hverju í ósköpunum ættum við að vera að styðja þá við bakið á slíkum ríkjum innan veggja Sameinuðu Þjóðanna sem voru stofnuð með það að markmiði að bæta heiminn sem við lifum í?

Bandaríkin gerðu rétt með að yfirgefa ráð sem eyðir helmingnum af tíma sínum í að ofsækja eitt ríki og neytar að breyta hegðun sinni. Ísland ætti að fara að dæmi þeirra. Það væri það siðferðislega rétta að gera.

Því að hver vill lifa í heimi þar sem við keppumst um að skaða hvor aðra með glórulausum ályktunum vegna ofstækisfullra trúarsjónarmiða?


Er Trump bara allt í öllu?

"Einnig er talið, að því er fram kem­ur í frétt AP, að mót­mæl­in séu vegna þeirr­ar ákvörðunar Don­alds Trump Banda­ríkja­for­seta að ganga út úr kjarn­orku­vopna­sam­komu­lagi ír­anskra stjórn­valda."

Einhvern veginn tókst AP fréttaveitunni, og Mogganum í framhaldi af því, að kenna Trump Bandaríkjaforseta um mótmælin í Íran sem eru nú búin að standa yfir í nokkra mánuði.

Staðreyndirnar eru þær að íranir eru búnir að fá meir en nóg af gerspilltri og öfgafullri hryðjuverkastjórn klerkaveldisins í Íran sem hefur meiri áhuga á að styðja stríð og hryðjuverk í nafni shiaislams út um heim allann en á að byggja upp Íran.

Fólkið í Íran borðar úr ruslatunnum meðan Houthis i Yemen fá miljónir dollara til stríðsreksturs og Assad í Sýrlandi, Hezbollah í Líbanon og Hamas á Gazaströndinni fá bæði vopna- og fjármálaaðstoð frá Íran.

Ekkert af öllum þeim milljörðum sem hafa streymt inn í Íran eftir kjarnorkusamning Obama hafa skilað sér út í þjóðlífið og hinn venjulegi Írani er búinn að fá nóg á Khamenei og hans liði.

Mótmælin hafa beinst gegn yfirvöldum á margann hátt. Fyrst og fremst gegnum mótmæli, eins og í Teheran í dag, fæst mótmælin hafa verið skipulögð og liggur þar stærsti veikleiki mótmælanna. Mótmælendur eru mjög sundraðir og lítin sem engin stefna hefur einkennt þau önnur en sú að fá Khamenei frá völdum. Hvað á að koma í hans stað er ekki víst.

En eitt er víst og það er að Íranir vilja fá lýðræði. Konur hafa kastað af sér slæðunum, og verið fangelsaðar fyrir, fólk hefur stðaið upp í hárinu á siðferðislögreglunni og birt myndbönd af sér dansandi um göturnar. Dans á almannafæri, sér í lagi "vesturlendskur" dans er bannaður með lögum, og verkföll hafa verið tíð. Einna mesta athygli vakti verkfall flutningabílstjóra fyrir nokkrum vikum en þá stoppaði Íran bókstaflega.

Það eina sem hefur ekkert að gera með þessi mótmæli er Trump. Annað en það að hann sagði strax í byrjun að Bandaríkin styddu íranska fólkið í baráttu sinni fyrir frelsi.

Því það er hvað þetta er um.

Frelsi.

Og að blanda Trump ínn í mótmælin í Íran og gera þar með lítið úr hugrekki íranska fólksins sem hefur verið að gefa líf sitt fyrir baráttuna fyrir frelsi er lágkúra.

Og ekkert sem Morgunblaðið ætti að taka þátt í.

Hvað sem AP segir.

Mogginn gæti t.d. notfært sér það sjálfsagða frelsi, sem Íranir eru að berjast fyrir, að fá að hugsa sjálfir og birta sannleikann á prenti en ekki bara APa upp það sem aðrir skrifa og segja.

Mogginn ætti heldur að fara eftir frumkvæði Trumps og birta daglega fréttir frá mótmælunum.

Íranska fólkið yrði þakklátt fyrir það.


mbl.is Fjöldamótmæli í Tehran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nazistafánar í Morgunblaðinu. Eða réttara sagt skorturinn á þeim.

Þetta er merkileg frétt. Hér er mogginn með rosa scoop um ástralska hermenn í Afganistan sem flögguðu Nazistafána árið 2007.

Það hefur aftur á móti ekkert verið fjallað um alla nazistafánana á Gaza síðustu vikur í mogganum. Palestinian-Flag-Swastika-via-IDF-e1523190986693-620x436Svastikan er gjarnan máluð á flugdreka sem Palestínskir arabar senda með Mólotovkokteila inn í Ísrael þar sem þeir eru búnir að valda miklum spjöllum á uppskeru, gróðri og jafnvel dýralífi. Það síðasta er að senda þessa flugdreka með sprengjur inn í Ísrael í von um að Ísraelísk börn laðist að þeim. Oft vel skreyttir með litríkum blöðrum. 
Hamas-Kite-Swastika-Molotov-Cocktail-Gaza-4-20-2108
Og eins og sjá má eru Palestínumenn geysilega stoltir af þessum uppfinningum sínum. En það er eins með þetta og aðrar fréttir frá Palestínskum hryðjuverkamönnum og athöfnum þeirra að um þá er ekki fjallað í Morgunblaðinu.

Af hverju? 4B5C715A00000578-5638821-image-a-82_1524235807477
Í maímánuði birti mbl.is frétt sem fullyrti að ungabarn hefði dáið af völdum táragas frá Ísrael. Nú eru foreldrarnir búnir að játa að Hamas borgaði þeim fyrir að ljúga að fjölmiðlum.

Verður það leiðrétt?

Ég ætla ekki að halda í mér andanum í biðinni eftir því.

En þó að það eigi að sjálfsögðu fyllilega rétt á sér að fjallað sé um ástralska hermenn akandi um með Hakakrossinn fyrir 11 árum síðan, þá skýtur skökku við að ekki sé fjallað um Palestínumenn að flagga nazistafánum í gríð og erg bara síðustu vikurnar?

Af hverju á það minni rétt á birtingu og umfjöllun?

Af hverju er 11 ára gamalt mál fréttaefni en ekki það sem er að gerast í dag?

mbl.is þarf að fara að spyrja sig býsna margra spurninga um af hverju nálgun þess á fréttaefni er svona hlutdræg.

(Allar myndirnar í þessari bloggfærslu eru teknar á síðustu vikum, þ.e.a.s. á sama tíma og "The Great Return March" hefur staðið yfir)


mbl.is Flögguðu nasistafána í Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig gyðingahatur verður til.

mbl.is gerir í dag, 6/4/2018, alveg sorglega (eða hlægilega) lélega tilraun til fréttaskýringar undir titlinum: Hvað mun gerast á Gaza í dag?

Rangfærslur, villur, skortur á staðreyndum og tilbúningur nýrra staðreynda einkenna greinina sem virðist vera lausleg þýðing á grein AFP fréttastofunnar (https://www.afp.com/en/news/23/clashes-erupt-protests-begin-along-gaza-border-doc-13q9qn1) með eigin athugasemdum blaðamanns Morgunblaðsins.  Greinin líkist einna helst þeim áróðri sem þekktist fyrr í löndum austan Járntjaldsins og óneitanlega rennur hugurinn til Baghdad Bobs hins fræga Írakska fréttamanns sem básúnaði út framgang Írakska hersins þegar sannleikurinn var sá að þeir voru að tapa stríðinu.

Við lestur greinarinnar verða nokkrar staðreyndir augljósar: 1. Blaðamaður mbl.is hefur enga þekkingu á viðfangsefninu, 2. Blaðamaður er meðlimur Hamas hryðjuverkasamtakanna eða beinlínis óvinveittur Ísrael, 3. Blaðamaður er óhæfur til að fjalla um málið, og 4. mbl.is birtir "Fréttaskýringu" sem á meira sameiginlegt með sögunum um Harry Potter en raunveruleikanum.

Þar sem rangfærslurnar í greininni eru of margar til að ég geti tekið þær allar fyrir í stuttu bloggi mun ég bara taka þær sem mér finns mestu máli skipta.

En áður en ég geri það verð ég að gefa grundvallandi bakgrunn og einföldun á því hvað það er sem er raunverulega í gangi og hvaða sjónarmið það er sem við verðum að halda okkur við.

Í stuttu máli er það sem er í gangi þetta: Hamas, sem stýrir á Gaza síðan 2007, eru alþjóðlega viðurkennd sem hryðjuverkasamtök og sem hafa útrýmingu Ísraelsríkis að meginmarkmiði sínu. Samkvæmt stjórnarskrá samtakanna er eina réttmæta leiðin stríð.

EKKERT sem gerist á Gaza gerist án vitundar og samþykkis Hamas. Að halda því fram, eins og greinin gerir að "mót­mæl­in séu skipu­lögð af mörg­um óháðum hóp­um og aðHam­as sé aðeins einn af þeim" er þvílík endemis heimska (eða lygi) að manni blöskrar skrif blaðamannsins. Hamas eru algerlega á bak við allt sem viðkemur þessum aðgerðum. Í gær lofaði Hamas til dæmis að fjölskyldur þeirra sem myndu látast í aðgerðunum fengju 3000:- usd og að þeir sem særðust myndu fá 500:- usd.

Ísrael fagnar um þessar mundir 70 ára sjálfstæði sínu og á sama tíma syrgja Palestínumenn að 70 ár eru líðin síðan sameinuðum herjum arabaríkjanna mistókst að gjöreyða hinu nýstofnaða ríki gyðinga í Palestínu.

Sem lið í stríði sínu gegn Ísrael hefur Hamas undanfarnar vikur (þetta mundi blaðamaður mbl.is vita ef hann fylgdist með) hvatt, uppörvað, þvingað og bókstaflega smalað Palestínumönnum af Gaza til að taka þátt í "mótmælum" við öryggisgirðingu Ísraels.  

Tilgangurinn er að í skjóli mannfjöldans geta smyglað hryðjuverkamönnum inn í Ísrael. 16 af þeim 19 sem voru skotnir í síðustu viku er búið að bera kennsl á sem meðlimi í Hamas eða Islamic Jihad (einnig hryðjuverkasamtök) og það má alveg benda á það að það eru palestínskir fjölmiðlar sem bera kennsl á þessa menn og lyfta fram þeim sem hetjum. Ísraelsher er einn best útbúni her heimsins tæknilega séð og í samvinnu við Shin Bet (ísraelíska FBI) hafa þeir fulla vitneskju um hvaða Palestínumenn eru hryðjuverkamenn og hverjir ekki. Þegar þáttakandi í óeirðunum kemur of nálægt öryggisgirðingunni eru notaðar myndavélar sem leyniskytturnar eru með til að bera saman myndir af aðilanum við myndir af þekktum hryðjuverkamðnnum og ef þeir eru vissir um að þetta sé meðlimur í Hamas eða öðrum álíka samtökum er viðkomandi skotinn. það er ekki hægt að kalla þig "friðsaman mótmælanda" ef þú gerir atlögu að "landamærum" vopnaður steinslöngvu, Molotov kokteil eða hríðskotarifli.

En.... villur fréttarinnar....

1. "Tugþúsund­ir Palestínu­manna söfnuðust sam­an við landa­mærag­irðing­arn­ar sem Ísra­el­ar hafa komið upp viðGaza-svæðið. Mót­mæl­end­ur kröfðust þess að fá aft­ur landsvæði sem af þeim hafði verið tekið".

Hér er því haldið fram fullum hálsi að Ísrael hafi tekið landsvæði af Palestínumönnum.  Ekki er greint frá því hér um hvaða landsvæði er verið að ræða. Einungis látið í veðri vaka að Ísrael hafi brotið á réttindum Palestínumanna, séu "vondi kallinn" í spilinu og þar af leiðandi "in the wrong" (væri þakklátur fyrir betri íslensku á hugtakinu).

Seinna í fréttinni er svo ýjað að því um hvaða landsvæði sé verið að ræða og nú eru lygarnar spunnar frítt: "Í mót­mæl­un­um er þess kraf­ist að rétt­ur Palestínu­manna sé virt­ur og að þeir fái að snúa aft­ur til lands­ins sem þeir voru hrakt­ir frá í stríðinu árið 1948 er Ísra­els­ríki var stofnað. 

Þessi krafa Palestínu­manna nýt­ur stuðnings Sam­einuðu þjóðanna en álykt­un stofn­un­ar­inn­ar þar um hef­ur aldrei verið upp­fyllt".

Landsvæðið sem um er að ræða er sem sagt Ísrael.  Ekki bara það landsvæði sem palestínskir araabar áttu að fá heldur allt land gyðinganna líka og þetta stríðir þvert á "Tveggja Ríkja Lausnina" sem SÞ, Ísland og flest vestræn ríki styðja.

Hér taka sögufalsanirnar út yfir allan þjófabálk.

Staðreyndirnar eru þessar: Í nóvember 1947 samþykktu Sameinuðu Þjóðirnar að skipta upp því sem eftir var af "Palestínu" á milli palestínskra gyðinga og palestínskra araba vegna þess að aðilarnar gátu ekki gert upp um hvernig þetta ætti að vera. Gyðingar samþykktu tillöguna en arabarnir höfnuðu henni. Til þess að hindra stofnun Ísraelsríkis byrjuðu nú arabalöndin í kring að undibúa sig fyrir gereyðingarstríð gegn gyðingunum í landinu. Þessu svöruðu gyðingarnir með að lýsa yfir fullvalda ríki sínu, sem þeir gáfu nafnið "Ísrael" og til að hafa alþjóðlega viðurkennt landsvæði til að verja.

Í örstuttu máli... tilvist Ísraelsríkis er 100% lögmæt en aldrei hefur fundist neitt sem heitir "Palestína".

Flestir þeir Palestínumenn sem yfirgáfu heimili sín og urðu í framhaldinu flóttamenn gerðu það af fúsum og fjálsum vilja og í fullum stuðningi við útrýmingarstríð arabaríkjanna gegn Ísrael.

Stríðið mistókst...fyrir arabaríkin, en Ísrael aftur á móti hélt velli og að sjálfsögðu kemur það aldrei til mála að hleypa aftur inn fólki sem er á móti tilvist landsins. Það finnst ekkert: "Úps við töpuðum stríðinu sem átti að útrýma ykkur en nú viljum við fá húsin okkar til baka."

Að halda því fram eins og mbl.is gerir að SÞ styðji það að palestínskir arabar fái að snúa aftur til "landsins sem þeir voru hraktir frá" er hrein lygi og sögufölsun og ekkert sem Morgunblaðið ætti að leggja nafn sitt við...ef það vill láta taka sig alvarlega sem fréttamiðil?

2. Orsök mótmælanna.

mbl.is heldur því fram að orsök mótmælanna eigi rætur sínar að rekja til slæms ástands á Gaza.  Ef svo væri raunin ættu Gazabúar að sjálfsögðu að mótmæla eigin yfirvöldum (Hamas) en ekki öðru landi? Og ekki bara einu af löndunum sem þeir eiga landamæri að?

Það ber að hafa í huga að slík mótmæli á Gaza eru bönnuð og þau fáu mótmali sem samt hafa átt sér stað hefur verið mætt af mikilli hörku frá Hamas sem hika ekki við að myrða og pynta sitt eigið fólk á Gaza.

Mótmælin eru tilbúningur Hamas og þjóna einungis þeirra eigin markmiðum.  Allar aðrar hörmungar sem eiga sér stað á Gaza eru líka á þeirra ábyrgð þar sem það er Hamas sem fer með stjórntaumanna. Varla mótmælir nokkur reykvíkingur gatnamálum borgarinnar með því að gera árás á London? En þegar það kemur að Ísrael þá virðast slíkar rökvillur vera fullkomlega eðlilegar.

3. Mannréttindavaktin.

Mannréttindavaktin (Human Rights Watch) er deild innan Sameinuðu Þjóðanna sem er undir stjórn lögræðingsins Kenneth Roth.  Kenneth Roth hefur margoft gert sig sekan um stuðning við Hamas, að neita að fordæma palestínsk hryðjuverk eða kúgun yfirvalda Palestínumanna, morð og pyntingar á Palestínumönnum osv.frv. 

Að reyna að halda því fram að þeir sé einhver hlutlaus aðili á ferð sem berst fyrir mannréttindum er "smokescreen".... í besta falli.

 

Nei. Þessi "fréttaskýring" mbl.is gerði mér óglatt. Engu er líkara en að höfundur sé meðlimur í Hamas hryðjuverkasamtökunum eða á launum hjá þeim. Þvílíkt samankvoð af lygum, rangfærslum og sögufölsunum hefur aðeins einn ávöxt: Vaxandi gyðingahatur og andúð á Ísrael.

Og Morgunblaðið ætti að sjá sóma sinn í því að ekki kynda undir rasisma á Íslandi.


mbl.is Hvað mun gerast á Gaza í dag?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jól í hvers skugga í Betlehem?

Enn heldur Morgunblaðið áfram að birta "Fake News" um aðstæður á Palestínsku Sjálfsstjórnarsvæðunum. Í þetta sinn frá Betlehem, fæðingarborg kristindómsins.  Morgunblaðið heldur því fram fullum hálsi að Trump Bandaríkjaforseti hafi eyðilagt jólin fyrir kristnum í Betlehem með ákvörðun sinni um að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels. Þar með tekur mogginn þátt í því sem tíðkast meðal gyðingahatara og hryðjuverkasamtaka sem hafa útrýmingu Ísraelsríkis efst á stefnuskrá sinni...ásamt reyndar fjölmörgum öðrum vestrænum fjölmiðlum.

Vægast sagt einkennileg hegðun eins elst og virtasta fjölmiðils íslendinga hvers lesendur nú verða að sætta sig við áróður frá hryðjuverkasamtökum í staðinn fyrir vandvirka fréttamennsku.  Það er sagt að leti sé undanfari heimsku...

Í stað þess að gleypa allt hrátt frá fyrsta aðila sem gefur upplýsingar um eitthvað sem gerist á þessum slóðum (eitthvað sem ég hélt kanski að fréttafólk ætti að vera búið að fatta sjálft) þá þarf alltaf að setjast niður í smá tíma og rannsaka trúverðugleikann í því efni sem maður hefur fengið.  Alveg sérstaklega þegar upplýsingarnar koma frá fólki sem ekki er frjálst eða jafnvel styður hryðjuverkasamtök eins og Hamas (eitthvað sem ég hélt kanski að fréttafólk ætti að vera búið að fatta sjálft) eða er jafnvel meðlimir eða leiðtogar slíkra hópa. Svo væri smá þekking á aðstæðum og bakgrunni ekki slæmt (enn eitthvað sem ég hélt kanski að fréttafólk ætti að vera búið að fatta sjálft).

En það virðast ekki gilda sömu lög fyrir Ísrael og aðra sem fjölmiðlar fjalla um.  Þetta kallast tvöfeldni og þegar það bitnar á Ísrael á þennan hátt aftur og aftur og aftur finnst það á lista frá European Forum for Antisemitism yfir hvað sem flokkast sem gyðingahatur. Skilgreining Evrópuráðsins á Gyðingahatri .

Það finnast nokkrar ástæður fyrir minnkandi fjölda ferðamanna til Betlehem um jólin.  Engar af þeim hafa neitt með ákvörðun Trumps að gera.

Það er ekki öruggt fyrir ferðamenn að vistas í Betlehem.  Ferðamönnum er ráðlagt að halda sig við hópinn og ekki villast eitthvert einir, sérstaklega ekki að næturlægi, vegna hárrar glæpatíðni í borginni. Ferðamenn vara við hættum í Betlehem . Þetta á við alla ferðamenn hvenær sem er ársins í Betlehem.

Önnur ástæða fyrir minnkandi jólahaldi í Betlehem er einfaldlega sú að kristnir flýja Borgina í stórum stíl. 1950 voru 86% íbúa Betlehem kristnir. Í dag eru þeir 12%. Kristnir sæta ofsóknum af halfu múslima á Palestínsku Sjálfsstjórnarsvæðunum bæði á Vesturbakkanum og Gaza eins og reyndar í öllum múslimskum löndum. Open Doors er stofnun sem fylgist með ofsóknum á kristnum á heimsvísu og gefur út á ári hverju lista yfir þau 50 lönd þar sem ofsókirnar eru verstar. Palestínsku Sjálfsstjórnarsvæðin eru í 23 sæti á þeim lista með einkunnina "Mjög alvarlegt" sem er næst versta einkunn sem hægt er að fá. Ef blaðamaður Morgunblaðsins hefði einhvern skilning og þekkingu á því hvernig ofsóttir minnihlutahópar hegða sér væri hann meðvitaður um að þeir bæði haga orðum sínum og verkum í samræmi við vilja ofsækjanda sinna til að verða ekki fyrir frekari ofsóknum. Í þessu dæmi er fullkomlega sá möguleiki til staðar að kristna konan sem vitnað er í í greininni segi það sem hún hefur heyrt frá Palestínskum stjórnvöldum. Það er bara eðlileg sjálfsbjargarviðleitni og til allrar hamingju ekkert sem fólk á Vesturlöndum þarf að hafa of miklar áhyggjur af. 

Hér má nálgast umsögn Open Doors um ástandið á Palestínsku sjálfsstjórnarsvæðunum: Open Doors World Watch List: Palestinian territories

Meira má svo lesa um kristna bæði á Palestínsku Sjálfsstjórnarsvæðunum og í Ísrael hér: Kristnir í Betlehem

En aðalástæðan er náttúrulega sú að á Palestínsku Sjálfsstjórnarsvæðunum var ákveðið að minnka jólahaldið. Múslimskur borgarstjóri Nazaret tilkynnti meira að segja einn daginn að það yrðu engin jólahöld þar, en skipti svo um skoðun daginn eftir.  Þetta varð svo til þess að fjölmargir hópar kristinna sem voru á leiðinni til t.d. Betlehem og Nazaret afbókuðu komur sínar.  In Bethlehem and Gaza Christmas celebrations nixed over Jerusalem decision        Eins og fram er komið eru kristnir palestínumenn ofsóttir af þeim múslimsku, bæði í Júdeu og Samaríu og á Gaza. Að ráðast á jólahaldið með þessum þætti er einnig gert til að refsa hinum kristnu vegna þess að á Palestínsku Sjálfsstjórnarsvæðunum er Trump álitinn vera kristinn maður þar sem Bandaríkin eru kristin þjóð. Það er bara rökrétt í þeirra heimi að taka þann órétt sem Palestínumenn telja sig hafa orðið fyrir af völdum Trump út á öðrum kristnum. 

Á sama tíma er búist við 20% aukningu á komu kristinna til Ísraels yfir hátíðirnar. Það er nefnilega þannig stór vitundarvakning hefur orðið meðal kristinna manna síðastliðna áratugi um tengingu kristindómsins við Ísrael. Á sama tíma eykst skilningurinn á því að Palestínumenn vilja Ísraelsríki burt.  Þetta og svo uppgangur BDS samtakanna (Boycott, Divestments and Sanctions, samtök sem hvetja til sniðgöngu á ísraelskum varningi og þjónustu og reyndar öllu sem hefur með Ísrael að gera og sækjast einnig eftir útrýmingu Ísraelsríkis) síðustu tíu árin hefur orðið til þess að kristið fólk er einfaldlega bara farið að minnka ferðir sínar til Júdeu og Samaríu.

Sú alda ofbeldis og mótmæla sem hefur riðið yfir á Palestínsku Sjálfsstjórnarsvæðunum í kjölfar viðurkenningar Trumps er alfarið á ábyrgð Palestínumanna og leiðtoga þeirra og hefur ekkert að gera með neitt annað en að þetta er það sem þeir vilja og ákveða sjálfir að gera.

Að reyna að kenna Trump um að jólahald sé á undanhaldi á Palestínsku Sjálfsstjórnarsvæðunum, eða að það sé jafnvel Ísrael að kenna, er bara fáránlegt.

Morgunblaðið ætti að hafa hærri standard á fréttaflutningi sínum en þetta.


mbl.is Jól í skugga ákvörðunar Trumps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslandi ekki boðið í teiti Bandaríkjanna

Titillinn er bein tilvitnun í frétt á visir.is.

Nú skulum við sjá...
Nokkrar staðreyndir um málið: Fullvalda ríki (USA) ákveður að framfylgja ákvörðun sem var tekin 1995, og allir forsetar síðan þá samþykkt, um að flytja sendiráð sitt til Jerúsalem (Vestur-Jerúsalem, sem hefur alltaf verið 100% öruggt að yrði höfuðborg Ísraelsríkis ef friðarsamningar við Palestínu-araba nást) frá Tel Aviv og tekur einnig þá ákvörðun um að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og tekur alveg skýrt fram í yfirlýsingunni að þessi viðurkenning hafi engin áhrif á framtíða borgarmörk eða hvað hluti muni tilheyra Ísrael og hvað Palestínu. Það, tekur Trump fram, er fyrir Ísrael og palestínumenn að semja um. Trump er EKKI að fara gegn neinu sem ekki hefur áður verið samþykkt af öllum hlutaðeigandi aðilum. Ísrael, PA, SÞ, EB OIC, AL... Hlustið á hvað Trump segir sjálfur:(6:20-8:00 Trump viðurkennir Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels Það er nákvæmlega engin leið að misskilja hvað hann er að segja. Og í beinu framhaldi af þvi...ENGIN ástæða til þeirra uppþota sem palestínumenn hafa staðið fyrir síðustu tvær vikurnar, ENGIN ástæða fyrir vandlætingu Arababandalagsins, OIC eða EB, ENGIN ástæða fyrir neyðarfundum hjá Öryggisráði eða aðalráði Sameinuðu Þjóðanna osvfrv. Trump biðlar til beggja aðila að varðveita "Status Quo"...en Palestínumenn, SÞ, EU, ofl hafa hafnað þeirri beiðni síðan þá.  Eini aðilinn sem hefur orðið við þeirri bón er Ísrael.

Eins og alltaf.

Í hnotskurn: Ba
ndaríkin viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og tilkynna um fyrirhugaðann flutning sendiráðs síns frá Tel Aviv til Vestur-Jerúsalem.

Ekki einungis löglegt heldur líka rétt þar sem Jerúsalem hefur allar götur síðan 1948 gegnt því hlutverki.

Ekki bara að Bandaríkin sem sjálfstætt fullvalda ríki hafi 100% rétt til að ákveða sjálfir hvar þeir staðsetja sendiráð sitt (mörg lönd sem hafa sendiráð í Ísrael höfðu sendiráð sín í Jerúsalem þangað til á níunda áratugnum) heldur hafa þeir líka 100% rétt á því að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels.

En vegna þess að palestínumenn hafa engann áhuga annan á Jerúsalem en þann að fá gyðinga burtu þaðan (Jerúsalem og meira að segja báðar moskurnar, Dome on the Rock og Al-Aqsa, var í niðurníðslu þangað til að gyðingar byrjuðu að flytjast aftur til Palestínu og Jerúsalem) þá taka OIC og Arababandalagið ásamt löndum eins og Svíþjóð, að sér að fordæma og reyna að afturkalla ákvörðun USA. Fyrst með kosningu í Öryggisráði SÞ sem mistókst og svo með kosningu í Aðalráðinu, þar sem OIC stýrir öllu sem hefur með Ísrael að gera. Í því samhengi er nauðsynlegt að skilja það að samkvæmt OIC (sem hafnar mannréttindasáttmála SÞ, berst gegn tjáningar-, trúar- og ritfrelsi á heimsvísu og vill að grófasta túlkun sharíalaganna verði stjórnarfar alls heimsins) er Ísrael "Waqf", þeas. land sem einu sinni hefur verið stýrt af íslam má aldrei stjórnast af neinum öðrum en múslimum og þess vegna er markmið OIC að eyða Ísrael út af kortinu.

Þetta vekur upp nokkuð margar spurningar...nema þá hjá flestum blaðamönnum....

T.d. Hvers vegna heyrðist ekkert frá OIC, UN eða Amnesty (sem oft mætti bara nefna "Palnesty") þegar Svíþjóð í lok október 2014 tók það upp á eigin arma, á móti vilja fólksins í landinu, á móti stefnu EU, á móti alþjóðalögum og á móti öllu sem hægt er kallast eðlilegt, að viðurkenna Palestínu sem fullvalda ríki? Það má líka nefna að Svíþjóð er með sitt konsúlat til Palestínu í Austur -Jerúsalem, eins og t.d. England ofl.

Þessi sirkus sem Sameinuðu Þjóðirnar eru orðnar er svo klikkaður að Jake Tapper hjá CNN tók þetta upp. 

Að Ísland taki þátt í að fordæma fullvalda ríki eins og Bandaríkin fyrir að framkvæma í samræmi við vilja þeirra sem kjósa og sem þau eru í fullum rétti til að gera er ekkert annað en til háborinnar skammar.

Ég vill nú frekar halda að þetta væri eitthvað sem íslenskir stjórnmálamenn ættu að taka sér til fyrirmyndar? Ég býst alla vega við að það yrði vinsælt hjá þeim sem kjósa þá...eða það er kanski akkúrat ástæðan fyrir því að Ísland tekur þátt í að fordæma þessa ákvörðun?

Hvað ætla Íslendingar næst að fordæma bandaríkjastjórn fyrir?

Að halda jól?


Hið besta mál.

Að Jerúsalem sé höfuðborg gyðinga ætti ekki að vefjast fyrir neinum. Nema þá þeim sem trúa hatursáróðri palestínskra araba sem hafa aldrei viljað neitt með borgina hafa fyrir en eftir að ísraelsríki var stofnað 1948.

Jerúsalem hefur aftur á móti verið höfuðborg gyðinga í 3000 ár. Fyrst í hinu forna ríki Ísraels, síðan í hjörtum þeirra eftir að þeir voru bannfærðir úr borginni af Hadríanusi Rómarkeisara og nú aftur síðan 1948. Í gegnum aldirnar hafa gyðingar hvatt hver annan með kveðjunni: "Næsta ár í Jerúsalem".

Sú skipting landsins sem Sameinuðu Þjóðirnar kusu um í nóvember 1947 var einróma hafnað af öllum ríkjum múslima í löndunum í kring...sem mörg hver urðu til á sama tíma og Ísrael eða jafnvel seinna. Sú höfnun leiddi til þess að það palestínska ríki sem var áætlað, og Ísrael samþykkti, hefur aldrei verið stofnað og aldrei verið til.  Þess vegna er það furðulegt þegar fólk talar um ríki eða land Palestínumanna og jafnvel landamæri sem aldrei hafa funnist eins og það væri blákaldur veruleiki.

PLO (Palestinian Liberation Organisation) var stofnað 1964. Af, meðal annarra, Yassir Arafat sem síðar varð fyrsti forseti Palestínumanna, siðblindur hryðjuverkamaður sem stakk alþjóðlegri fjármálahjálp í eigin vasa og erfði fjölskyldu sína að fleiri milljörðum. Einn helsti stuðningsmaður og bakhjarl Arafats, sérstaklega fjárhagslega, er svo Mahmoud Abbas sem nú situr sem forseti...inni á sínu 13 ári af 4.  Hvernig það virkar verður lesandinn að útskýra fyrir sér sjálfur. En Abbas, sem skrifaði háskólaritgerð sem afneitaði Helförinni hefur síðan haldið uppteknum hætti Arafats að stela alþjóðastyrkjum, búa vel í haginn fyrir fjölskyldu sína og vini, berjast gegn frelsi meðal Palestínumanna eins og t.d. tjáningar og ritfrelsi, og hvetja sitt fólk, sérstaklega börn og unglinga (nema sín eigin) til hryðjuverkaárása gegn gyðingum.

Í stjórnarskrá PLO (1964 útgáfunni, henni var breytt efitr 6 Daga Stríðið 1967) Var talað um "Frelsun Palestínu".  Það landsvæði sem átti að frelsa var land gyðinga, ÖLL Jerúsalem innifalin, eða hið unga Ísraelsríki. Inni í þeim plönum voru hvorki Gaza, sem var ólöglega hertekið af Egyptum, né Júdea og Samaría (Vesturbakkinn) sem var á sama tíma ólöglega hertekið af Jórdaníu.

Frá 1949 til 1967 máttu þeir gyðingar sem bjuggu í vesturhluta Jerúsalem horfa uppá palestínska araba eyðileggja forna grafreiti gyðinga í austurhluta borgarinnar, legsteinar voru t.d. notaðir við gatnagerð, sýnagógur voru lagðar í rúst og reyndar var allt sem minnti á veru gyðinga í Austur-Jerúsalem eyðilagt. Og ofan á allt saman gátu þeir ekki gengið óhultir um götur Vestur Jerúsalem án þess að eiga það á hættu að verða skotmörk jórdanskra leyniskyttna sem lágu uppi á húsþökum í austurhluta borgarinnar og skutu á fólk í vesturhlutanum.

Eftir 6 Daga Stríðið var borgin sameinuð og síðan þá hefur Ísrael séð til að nokkurs konar friður ríkir í borginni.  Ísrael er t.d. sá aðili sem hefur séð til þess að allir íbúar borgarinnar hafi aðgang að sínum helgustu stöðum, nema að gyðingar mega ekki biðja á Musterishæðinni sem er þeirra helgasti staður vegna þess að þar eru Jórdanir við völd.

Að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels er ekki einungis sögulega, lagalega og siðferðislega rétt, heldur einnig stórt skref í átt að friði milli Ísraels og Palestínumanna.  Það er löngu kominn tími á að setja pressuna á Abbas.  Það er löngu kominn tími á að krefjast þess að Abbas láti af linnulausum hvatningum til palestínskra barna og unglinga um að fremja sjálfsmorð í "heilögu stríði" og það er sko löngu kominn tími á að Vesturlönd, Ísland innifalið, horfist í augu við það að Palestínumenn eru miklu áhugasamari um gereyðingu Ísraelsríkis en stofnun eigins.

Ef við virkilega viljum fá frið þarna og stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna þarf það að gerast á grundvelli sannleikans en ekki þeim lygum sem palestínskir arabar eru búnir að dæla í vesturlandabúa síðan á tímum nazistans Haj Amin al-Husseini. Föður Palestínumanna.

Ísland ætti að fara í fararbroddi og viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og flytja sendiráð sitt hið snarasta til Vestur-Jerúsalem.

Það mun setja nýtt líf í Friðarviðræðurnar.


mbl.is Segist ætla að flytja sendiráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvar er Ísrael?

Samkvæmt frétt morgunblaðsins 18 ágúst 2017 hafa Á annað hundrað látist í ökutækjaárásum þegar hryðjuverkamenn hafa notast við bíla sem vopn. Síðan telur blaðið upp hvar, hvenær og hversu mörg fórnarlömb á býsna skilmerkilegann og vandaðann hátt og sýna á korti hvar hryðjuverkin hafa verið framin.  Allt gott og blessað.

En hvar er Ísrael?

Sannleikurinn á bakvið þessar árásir, sem nú IS hvetur sína menn til víðs vegar um Evrópu, er að þessi tegund hryðjuverka er runnin undan rifjum íslamístískra palestínumanna, og hvatt til af meðal annars Fateh og Hamas (ríkjandi stjórnvöldum á Palestínsku sjálfsstjórnarsvæðunum).  

Bílaárásum af þessu tagi hefur verið beitt um árabil af palestínumönnum, heilaþvegnum af gyðingahatri og lygum eigin stjórnvalda, í viðleitni þeirra til að "Frelsa Palestínu", eða réttara sagt: að útrýma gyðinglegri nærveru í því sem samkvæmt íslam nefnist: "Waqf".  Waqf þýðir í einföldu máli að landsvæði sem einu sinni hefur tilheyrt íslam má aldrei eftir það tilheyra nokkru öðru ríki og ÞAÐ er aðal ástæðan fyrir 100 ára sögu hryðjuverka palestínskra araba gegn gyðingum í, fyrst, Palestínu og síðar meir sama landsvæði sem í dag heitir: Ísrael.

Bara á tímabilinu 1 október 2015- 20 september 2016 (11 mánuðir) voru yfir 30 svona árásir framdar í Ísrael. Og það er bara því að þakka(sic) að vegna stöðugra hryðjuverka um árabil að ísraelsmenn (og konur) eru stanslaust á varðbergi, og öll öryggisgæsla margföld miðað við hvað mætti teljast eðlilegt í Evrópu, að einungis 2 Ísraelsmenn létust af völdum bílaárása. Að auki má bæta við að á sama tímabili voru framdar 84 hnífaárásir, 57 tilraunir til hnífaárása, 20 árásir með skotvopnum og 4 sprengjuárásir.

En samkvæmt íslam á ekki bara að "frelsa" Palestínu heldur þarf að "frelsa" öll lönd undan "ágangi" vantrúaðra (ekki-múslima). Og það er það sem við erum að sjá gerast núna síðustu ár í Evrópu.

Mér þykir mjög merkilegt að fjömiðlar og stjórnmálamenn, á Íslandi og annars staðar í Evrópu virðast eiga mjög erfitt með að sjá samhengið þarna á milli?

Er það af ásettu ráði eða bara hrein og bein vankunnátta?

En þangað til að fólk gerir sér grein fyrir að það sem er að gerast nú er heilagt stríð íslamskra öfgamanna sem stefna að heimsyfirráðum (hljómar jafn brjálæðislega og það er), munu stjórnvöld, fjölmiðlar, lögregla og aðrir sem eiga að sjá um að halda borgurum sínum upplýstum og öruggum, einungis halda áfram að fálma um í myrkri og ruglingi og ástandið haldast óbreytt.

Því það er hálf fáránlegt að sjá þennan lista moggans án þess á Ísrael sé með á honum.

Það eina rétta sem Evrópa á að gera núna er að snúa sér til Ísraels sem er búið að standa í þessu stríði í 100 ár og fá hjálp, ráðleggingar og menntun í hvernig þeir eigi að bera sig að. (Mörg lönd Evrópu eru reyndar að því, Frakkland og Tékkland til dæmis).

En til þess þarf sama fólk að byrja að gera sér grein fyrir og viðurkenna að Ísrael er ekki stóra vandamálið fyrir botni Miðjarðarhafs.

Og það er kanski of stór biti að kyngja?


Tillaga Reykjavíkurborgar um sniðgöngu. Fyrsta villa. Fyrsti hluti. Sagan.

Fyrsta villa tillögunnar kemur fram strax í fyrstu málsgrein... nú fyrir utan auðvitað titilinn og dagsetninguna... sem hefði alveg getað verið skrifað 1933 í Berlín....en það hefði verið grátbroslegt ef níumenningarnir hefðu ruglast í ríminu þar líka...

En... fyrsta villan lítur svona út : "...hernám Ísraelsríkis á landssvæði Palestínumanna..."

Til að útskýra villuna er nauðsynlegt að þekkja til sögunnar.  Þrjár sögur þarf að þekkja: 1. Sögu Ísraels og gyðinga, 2. Sögu Palestínu og 3. Sögu palestínumanna.

Það er algerlega ómögulegt að gera þessu skil í stuttu bloggi... ómögulegt í löngu bloggi líka... svo að af einhverju viti sé, en við getum farið á handahlaupum í gegnum söguna og rekið niður fæti í nokkrum stórviðburðum sem hafa með þetta þrennt að gera.  Til að hafa þetta ekki allt of langt og vegna þess að ég er ekki 100% nákvæmur í öllum ártölum (man t.d. ekki hvort Júdea var skírð "Palestína" 130 e.Kr. eða 135 e.Kr. Gæti meira að segja hafa verið 131 eða 133 e.Kr en við hljótum að geta verið sammála um að það skiptir engu máli, ég skal vera nákvæmari með þau ártöl sem skipta máli) Þá mun ég bara nefna lítillega atburðina, ekki gefa neinar heimildir (þið getið googlað sjálf...ég sé reyndar í kommentakerfinu hjá mér að margir eiga í vandræðum með google... ;)  ) og treysta því að þeir sem vilja vita hvort það sem ég skrifi standist leiti upplýsinga sjálfir.

Í þessari færslu munum við einungis skoða fyrsta hlutann : Sögu Ísraels og gyðinganna.  Saga landsins og fólksins er samofin, það hafa alltaf verið gyðingar í Ísrael/Palestínu og gyðingar í dreifingunni hafa alltaf borið Ísrael og Jerúsalem í hjarta sínu.

En byrjum...

Ca 2000 f.Kr. Abram flytur með fjölskyldu sína frá Úr í Kaldeu (Írak) til Kaananlads.  Úr var mikil menningarborg og við fornleifauppgreftra þar hafa fundist árítaðar steintöflur sem er merki þess að þar var leskunnátta, vatnsþrór og fleira forvitnilegt.  Kaananland var svo að segja óbyggt. Þar voru hirðingjahópar, líklega hver hópur ein fjölskylda fyrir sig.  Abram setst þar að með Lot frænda sínum og uxu hagir þeirra beggja það mikið að þeir skiptu landinu á milli sín, annar fór suður en hinn norður.  Það sem við vitum frá þessum tíma er að það var friður milli Abrams og annarra sem bjuggu þarna og að Abram, vegna efna sinna, var álitinn konungur á svæðinu.

ca 1800 f.Kr Jakob, sonarsonur Abrams, sem nú hét Abraham, fer til Egyptalands með fjölskyldu sína vegna hungursneyðar í Kaanan og dvelja þeir þar 430 ár.

Ca 1400 - 1350 f.Kr Móse leiðir þá sem nú voru orðnir Ísraelsmenn (Jakob fékk nafnið Ísrael og er þjóðin sem afkomendur hans nefndir eftir honum) úr Egyptalandi.  Sagnfræðinga og mannfræðinga greinir á, en giskað er á að Ísraelsmenn hafi verið orðnir 1.5 - 3 milljónir á tíma Móse.  Margir sem rannsaka gyðingahatur (antisemitism) vilja meina að Faraó sé sá fyrsti sem hægt er að bendla við það.  Af ótta við að gyðingarnir yrðu of margir og voldugir og tækju af honum ríkið (hljómar kunnuglega?) hneppti hann þá í enn meiri þrældóm og lét drepa öll sveinbörn sem fæddust.  Ég mun fjalla meira og ítarlegar um gyðingahatur seinna meir en læt nægja hérna að nefna að gyðingahatur er kynþáttahatur (rasismi), elsta þekkta kynþáttahatrið og það eina sem "sparkar uppávið".  Kynþátthatur gerir alltaf minna úr þeim sem fyrir því verða, "heimsku negrar", "ofbeldisfullu múslimar" osvfrv.  Gyðingahatur aftur á móti, eins og hjá Faraó, hatast vegna krafts, valds og yfirburða gyðinganna, bæði loginna og sannra.  "Heimsyfirráðastefna gyðinga" t.d.

Undir leiðsögn Jósúa, lærisveins Móse, leggja ísraelsmenn landið undir sig með hernaði.  Samkvæmt Biblíunni hafði Guð gefið þeim landið þegar á tíma Abrahams og þeir áttu að vera refsivöndur hans á þær þjóðir sem höfðu búsett sig í því, þegar Ísrael var í Egyptalandi, vegna hjáguðadýrkana þeirra, sérstaklega vegna þess að "þeir láta börn sín ganga gegnum eldinn" sem voru mannfórnir til höfuðs Mólok(?) eins af guðum kananítanna.  Sumar "þjóðir" voru gereyddar, öðrum hlíft og enn aðrir urðu partur af Ísraelsmönnum.

Hér byrjar fólk yfirleitt alltaf að benda á þessi stríð sem ólögleg og dæmi um grimmd gyðinga.  Þá vill ég bara minna á þetta var algengt á þessum tímum (og er enn í dag) og alls ekkert einsdæmi fyrir gyðingana.  Það er einfalt að bara líta á landakort og sjá hversu mikið landamæri, lönd og þjóðir hafa breytst, birst og horfið síðustu 2000 ár... og ekki minnst á 20:u öldinni.  Ég man t.d. eftir Júgóslavíu, Tékkóslóvakíu að ógleymdum Sovjetríkjunum ofl.  Þessi þjóðerni eru horfin líka.  Í dag eru til Rússar, Tékkar, Slóvakar, Króatar, Serbar osvfrv.

ca 1000 f.Kr Davíð konungur. Sameinar Ísraelsmenn, "byggir" Jerúsalem og breiðir út Ísraelsríki, sem er nú orðið töluvert stórt ríki á þessum slóðum á þeim tíma.  Solómon sonur hans breiðir út ríkið enn fremur og byggir fyrsta musterið á Musterishæðinni í Jerúsalem.

Eftir fráfall Salómons liðast svo Ísraelsríki í sundur og skiptist að stærstu leyti í tvo parta : Norður- og Suðurríkin, eða Samaríu og Júdeu eða Júda.

900 - 607 f.Kr.  Assýríska heimsveldið.  Eyðir Norðurríkinu (Samaríu) 721 f.Kr og skattleggur Suðurríkið (Júda)

Ég skelli hérna inn örlitlum fróðleiksmola....  á hebresku eru tengslin milli "Júda/Júdeu" og "gyðinga" (jews) mjög greinileg, svo að segja sama orð.  Alveg eins og "Ísland/íslendingar" "Bandaríkin/bandaríkjamenn"

605 - 536 Babýloníska heimsveldið. (Írak) Hertekur Jerúsalem, leggur musterið í rúst og herleiðir Júda.  Merkilegt að hugsa til þess að sagnfræðingar líta á þetta hlutlausum augum en ekki hernám Ísraelsmanna undir Jósúa...???

536 - 330 f.Kr.  Persneska heimsveldið (Íran) Leyfir gyðingunum að snúa aftur til Jerúsalem og endurreisa bæði borgina og musterið.  Samkvæmt skipun Persakonungs áttu gyðingarnir landið en stóðu nú í stöðugum stríðum við ræningjahópa og aðra sem höfðu setst að í landinu.  Helstu óvinir voru "Filistear" sjóræningjar frá grísku eyjunum... komum betur að þeim síðar....

330 - 146 f.Kr Gríska heimsveldið.  

146 f.Kr - 476 e.Kr Rómverska heimsveldið.

Allann þennan tíma bjuggu gyðingar í landinu.  Helst í Jerúsalem eða bæjunum í kring t.d. Betlehem og Hebron. 

Frá tíma Assýríska heimsveldisins og til loka Rómarríkis var Ísrael hersetið og skattskylt, þrátt fyrir vissa sjálfsstjórn, og nafn landsins var yfirleitt Júdea og Samaría og litið á þessi svæði sem bara héruð í heimsveldunum.  T.d. hét Júdea "Rómverska héraðið Júdea" á dögum Rómarríkis, eða þangað þangað til ca 130 e.Kr þegar nafni landsins var breytt í "Palestína"

70 e.Kr.  Gyðingar gera uppreisn sem er bæld niður 73 e.Kr, og í kjölfarið er musterið, þriðja musterið sem Heródes hafði látið reisa (fyrri tvö voru musteri Salómons og musteri Nehemía eftir herleiðinguna til Babýlon), eyðilagt og Róm byrjar að reka gyðinga frá landinu og Jerúsalem.  Vert er að taka það fram að margir gyðingar voru ekki reknir burt á þessum tíma heldur einfaldlega fluttust þeir frá landinu.  Flestir af þeim sem voru reknir burtu voru þeir sem Róm leit á sem glæpamenn og voru þeir sendir í fangelsi til Evrópu eða seldir í þrælahald í Lýbíu.

Ca 130 e.Kr.  Bar-Kokba uppreisnin.  Litlum hópi gyðinga tókst um nokkurra ára skeið að gera rómverjum lífið leitt með blóðugum skærum undir leiðsögu Símons Bar-Kokba.  Uppreisnin var bæld niður 135 e.Kr og Hadríanus keisari, sem nú hafði fengið nóg af þessum stanslausu uppreisnum gyðinga bannar þeim aðgang að Jerúsalem og breytir nafni landsins í "Sýrland-Palestína" og nafni Jerúsalem í "Aelia Capitolina".  Fræðimenn eru ekki á eitt sáttir, og engar afgerandi heimildir eru til um af hverju þessar nafnabreytingar, en flestir eru á því máli að þetta hefi verið gert meðvitað til að slíta öll tengsl gyðinga við landið og borgina.

Næstu ca 2000 ár eru frekar tíðindalítil hvað varðar nafnabreytingar eða veru gyðinga í landinu.  Lítill hópur gyðinga hefur alltaf fundist...og búið við mismunandi hörð kjör, sérstaklega á tímum kalífadæmisins þar sem hagir þeirra fóru algerlega eftir því hvað kalífi var við völd hverju sinni.  Flestir gyðingar hafa nú dreifst út um allann heim. Stór hópur var ennþá í Babýlon síðan á dögum herleiðingarinnar þangað og margir fleiri fóru þangað eftir 135 e.Kr.  Stórir hópar gyðinga búsetja sig í Egyptalandi og það sem nú heitir Sádí-Arabía.  T.d. var Medína gyðingaborg áður en Múhammeð tók þar yfir.  Tyrkland, Grikkland, Rússland og áfram inn í Evrópu, og eftir fund N-Ameríku flykktust gyðingar þangað vegna ofsókna í Evrópu á dögum spænska rannsóknarréttarins.

Og svo ca 1850 e.Kr byrja svo gyðingar að flytja aftur í auknum mæli til Palestínu. Zíonistahreyfingin undir forystu Theodor Herzl rís upp, pogrómer í Rússlandi og ofsóknir í Evrópu aukast að nýju og nú fara hlutirnir að gerast hratt.

En það tökum við fyrir í næsta pistli.

Eitt af því sem er alveg greinilegt er að það er óbrotin nærvera gyðinga í Heilaga landinu sem nær ca 4000 ár aftur í tímann og eru þeir sem þjóð einir um það.


Drynjandi dauðaþögn íslenskra fjölmiðla afhjúpar hlutdrægni.

Í gærkvöld var haldin merkur atburður á Grand Hótel.  Reyndar merkasti atburður sinnar "tegundar" síðustu ára.  Þar talaði Ben-Dror Yemini, ísraelskur blaðamaður um málefni eins og:  hernám, Gaza, Hamas, BDS og gyðingahatur, svo fátt eitt sé nefnt.  Mér skilst að eftir erindið hafi verið frjálst að setja fram spurningar.

Hér var mættur maður sem gjörþekkir málavöxtu, er frá svæðinu og hefur fylgst með því sem blaðamaður.  Hefði mátt ætla að íslenskir blaðamenn sem áhuga hafa, eða jafnvel skrifa fréttir um málefnin fyrir botni Miðjarðarhafs mundu mæta og hlusta á kollega sinn.

En dauðaþögn íslenskra fjölmiðla um þennan viðburð, sem án efa er hægt að fullyrða að sé sá stærsti og fróðlegasti um þess málefni síðustu 20 ár, afhjúpar tvískinnunginn, að ég ekki segi fordóma, og jafnvel fyrirfram ákvarðaðar skoðanir sem er ekkert annað en gyðingahatur.

íslenskir fjölmiðlar eins og visir.is birta greinar þar sem Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels "sakar leiðtoga araba"... allt í einu eru palestínumenn orðnir arabar (annars má aldrei halda því fram (sic)), staðhæft er að "undanfarin misseri hefur hnífaárásum fjölgað í Ísrael"  hvaða undanfarin misseri???  ef síðustu tvær vikur eru "misseri" í augum blaðamans er ekki skrýtið að fréttamenskan er á svona lágu plani á íslenskum fjölmiðlum.  Ísraelski unglingurinn er "sagður" vera á sjúkrahúsi...  gerið heimavinnuna ykkar.  Hann ER á sjúkrahúsi.  Einmitt þetta "sagði" er eitt af einkennum þess gyðingahaturs sem birtist í íslenskum fjölmiðlum.  Að æ ofan í æ taka fram að "Ísrael sagði", "Ísrael segir" "Ísrael segist" og "að sögn Ísraels" er merki um að blaðamennirnir dragi allt í efa sem kemur frá ísraelsmönnum....ólíkt vinum þeirra í hryðjuverkahópnum Hamas sem íslenskir fjölmiðlar taka fullt mark á þegar notaðar eru tölur um t.d. látna í átökum...en að efast um allt sem kemur frá öðrum aöilanum, sem hefur mun hærri siðferðislegann standard en t.d. Hamas, er tvískinnungur og þessi tvískinnungur í garð Ísraels er að sjálfsögðu ekkert annað en gyðingahatur.

Hér í Svíþjóð var sendiherra Ísraels spurður í útvarpi hvort gyðingar bæru sjálfir ábyrgð á hatrinu sem beinist gegn þeim.  Kæra var lögð fram á hendur ríkisútvarpinu þar sem það síðan var dæmt sekt um brot í starfi og starfsfólkið þar sett á námskeið um gyðinghatur.

kanski kominn tími á slíkt á Íslandi?


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband